Vinir og börn


Mikið hrikalega er maður orðinn gamall þegar vinir manns og kunningjar eru allir farnir að eignast börn. Vinur minn hann Brynjólfur er með barnið sitt hana Isabelli Heiðrúnu, sem á heima í Noregi, í heimsókn þessa dagana. Eru þau ekki sæt? Nú fer maður bráðum að ættleiða held ég…

Hver er þín skoðun?

Efnisorð:


6 athugasemdir

  1. Já mikið óhugnalega er hún litla lík honum föður sínum, vonum samt að hún líkist móður sinni þegar hún eldist, hennar vegna
    En hvað er að heyra þetta Siggi minn, mér finnst eggjastokkarnir þínir farnir að klingja óhugnalega mikið!!!

  2. En annars finnst mér merkilegt hvað hann Binni gat búið til sætan og krúttlegan krakka, þessu hefði ég aldrei getað trúað uppá hann!!

  3. Mig er búið að langa að eignast börn lengi. Verst að einhverjar reglur segja að þá þurfi maður að finna móður líka og ég hef nú ekki eins mikinn áhuga á því.

    Annars finnst mér þú vega ansi mikið að vini okkar honum Binna. Mér finnst hann eiga það fullkomlega skilið að eignast krúttulegan krakka, enda er hann sjálfur svo mikið krútt!

  4. Vissi ekki að Binni ætti barn en vá hvað hún er nákvæmlega einsog hann!!!
    Verst að það sé búið að leggja niður Alþýðuflokkinn sáluga þegar hún elst upp!!!

  5. Dettur það ekki í hug. Þú ert krútt!

  6. Krútt? Ég? Skammastu þín!

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.