Hinsegin dagar 2003


Það var virkilega gaman að sjá hve margir mættu til að taka þátt í Hinsegin dögum í dag þrátt fyrir hellidembu. Það var örugglega sett met í regnhlífanotkun í dag. Eins og venja er var skrúðgangan litskrúðug og fjörug og mikið um dýrðir.


Þegar að Lækjargötu var komið voru sýnd skemmtiatriði og hrífandi ávörp flutt. Í einni ræðunni voru skoðanasystkini páfans og Bush Bandaríkjaforseta hér á Íslandi hvött til að koma út úr skápnum með fordóma sína. Öðruvísi er ekki hægt að berjast gegn fordómunum. Ég óska aðstandendum hátíðarinnar til hamingju.

Sjá myndir af Hinsegin dögum.

Hver er þín skoðun?



3 athugasemdir

  1. Flottar myndir! Veistu e.t.v. um fleiri sem tóku myndir á GayPride 2003 í Reykjavík? Kveðja, Þröstur

  2. Takk fyrir það Þröstur. Þú stóðst þig líka eins og hetja með Laugaráskvartettinum! Vissi ekki að þú værir svona fínn söngvari! Annars var fullt af fólki að taka myndir þarna. Þekki því miður engan persónulega.

  3. Það má finna fleiri myndir undir „Fréttir“ á vefsíðu Samtakanna ’78:
    http://www.samtokin78.is

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.