Nokkrir góðir dagar


Á föstudaginn kíkti ég með Hinrik á Flúðir. Þar hittum við Geir, Bensa, Jón Skapta Skafta, Ragga Guðmunds og Jónas og skemmtum okkur vel. Á laugardag héldum ég Hinrik og Bensi áfram til Akureyrar og eyddum það sem eftir var af Verslunarmannahelginni. Við keyrðum yfir Kjöl sem var algjör martröð!


Það var mjög gaman á Akureyri og kynntist ég þar fólki sem ég vonast til að kynnast betur… Eftir helgi ákvað ég að taka rútuna til Reykjavíkur þar sem ég hélt að ég þyrfti að vinna. Það var víst einhver misskilningur. Hinrik er því einn á hringferð um landið.

Hver er þín skoðun?

Efnisorð:


4 athugasemdir

  1. Hver á ég að gjalda? af hverju halda allir að Skafti í nafninu mínu sé skrifað með P-i? Það er ljótt að heita Skap-ti sjáið bara hvernig nafnið skiptist! SKAP það er nú ekki eins og ég sé einhver SKAPhundur sem er alltaf í vondu SKAPI. Það er frekar nær lagi að ég SKAFI ekki af hlutunum, ekki satt?
    Gerum rétt skrifum Jón SkaFti í framtíðinni! :)

  2. Hahaha. Þetta var gert viljandi til að kveikja í þér. Bróðir þinn hvíslaði því að mér að þetta færi MJÖG í taugarnar á þér

  3. mig grunaði það líka… hann stundar þetta :)

  4. LOL Alltaf gaman að smá stríðni … Jón minn, mundu að anda djúpt og telja upp að tíu…

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.