Sænsk vinkona á leið til Íslands


Ellen Tekla Stenholm vinkona mín frá Svíþjóð, sem ég kynntist í Búdapest 2001, er á leiðinni til landsins. Hún er að ferðast með pabba sínum og kærasta og verður hér í nokkra daga. Það verður frábært að hitta hana aftur enda urðum við mjög góðir vinir þegar við kynntumst á ráðstefnu ungra social demókrata í Ungverjalandi.


Ellen er stórskemmtileg, klár og sæt stelpa. Því er ekki að leyna að ég var svolítið skotinn í henni hér einu sinni :) . Ég á fáar eins góðar minningar eins og frá dvöl minni í Búdapest.

Seinna sama ár heimsótti ég bæði Ellen og Jens (sem ég kynntist líka í Búdapest) til Svíþjóðar og náði að kynnast þeim báðum aðeins betur þó þau hafi bæði reyndar verið mjög upptekin í skóla og vinnu á þessum tíma.

Vonandi gefst mér tækifæri til að spjalla svolítið við Ellen og faðma hana að mér þegar hún kemur til landsins.

Hver er þín skoðun?

Efnisorð:

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.