Kynmök samkynhneigðra heimiluð


Það kann að hljóma undarlega en í nokkrum ríkjum Bandaríkjanna, landi frelsisins, er samkynhneigð bönnuð með lögum! Nú hefur þessu fáránlega banni verið aflétt í Texasfylki*, íhaldsmönnum til mikillar geðshræringar. Robert Knight, sem er framkvæmdastjóri Menningar- og fjölskyldustofnunarinnar (íhaldsamt smáborgarafélag með kristnu ívafi), telur að með lagabreytingunni fari allt til fjandans.


Rökrétt ályktun hans er ,,auðskiljanlega“ sú að nú séu ,,lög gegn vændi, sifjaspellum, tvíkvæni og jafnvel kynmökum manna við dýr“ í hættu.

Vændi og tvíkvæni eru auðvitað ekki siðlausar athafnir, ekki frekar en samkynhneigð og ,,hefðbundið“ kynlíf. Enda hlýtur enginn beinan skaða af. Ekki ef við gerum ráð fyrir því um sé að ræða athafnir upplýstra og samþykkra einstaklinga.

Menn eins og Knight finnast um allan heim. Oftast starfa þeir í íhaldssömum stjórnmálaflokkum og/eða trúarhreyfingum. Þetta fólk virðir frelsi og réttindi einstaklingsins að vettugi en krefst þess að allir séu lagalega þvingaðir til að tileinka sér gildismat íhaldsmanna.

Mér skilst að í sumum fylkjum Bandaríkjanna séu munnmök og endaþarmssamfarir einnig bannaðar af svipuðum ástæðum. Ef mönnum líkar ekki eitthvað finnst þeim ekki nóg lifa eftir eigin sannfæringu í sínu eigin einkalífi. Nei, það á að banna, banna, banna.

Einu tilfellin þar sem bönn eru réttlætanleg eru þau þegar athafnir fólks skaða aðra einstaklinga eða samfélagið beint. Þess vegna er einmitt stundum réttlætanlegt að banna frelsisskerðandi aðgerðir íhaldsmanna.

*Samkvæmt Rúnari félaga mínum hefur banninu víst verið aflétt í öllum fylkjum Bandaríkjanna. Ekki bara í Texas. Gott ef satt er.

Hver er þín skoðun?



3 athugasemdir

  1. Ég bý einmitt í Texas og hef lengi blöskrast yfir þessari lagasetningu. Hélt fyrst að þetta væri grín, en svo er víst ekki. Það eru einnig svipuð „lög“ til um hjálpartæki ástarlífsins. Vissar tegundir eru víst bannaðar með lögum. Annars hefur þetta sjaldan verið virt af neinum hér nema þá helst til að hlæja að því. Þessi lög þjóna einna helst þeim tilgangi að veita biblíubeltisíhaldsmönnum réttlætingu með sjálfum sér að fordæma samkynhneigða. Þetta er að sjálfsögðu sprottið upp frá þeirri ranghugmynd að allt siðferði sé komið úr kristinni trú og lög skuli þess vegna sett af siðprúðum guðhræddum siðapostulum.

    En það er ekki alveg rétt að þessu banni hafi aðeins verið aflétt í Texas. Með ákvörðun hæstaréttar bandalagsins hefur alríkissjórnin þar með fellt þessi lög í öllum ríkjum.

  2. Ok, ég hef greinilega misskilið fréttina sem ég las. Gott að búið er að aflétta þessu í öllum fylkjum. Hvaða leiktæki eru annars bönnuð? :)

  3. Ég heyrði því hent um daginn að það væri bannað að selja hvers kyns eftirlíkingar af getnaðarlimum í sumum bæjum hérna. Þá er það frekar borgarreglur (city ordinance) sem banna svoleiðis. Fólk er meira siðferðilega skúffað sumsstaðar en annarsstaðar hér. T.d. í Temple, þar sem ég gifti mig, þar er áfengi bannað innan borgarmarkanna.

    Það má sko finna alls konar siðferðislög hér, maður þarf bara að fara nógu víða.

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.