Femínistar á rangri leið
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Klámvæðing
Viðbrögð: Ummæli (
Ég er að hugsa um að skella mér á nektardansstað í kvöld. Ofbeldisvarnarhópur Femínistafélags Íslands hefur nefnilega ákveðið að selja barmmerki með áletruninni ,,Ég kaupi konur“ fyrir utan nektardansstaðinn Goldfinger í Kópavogi í kvöld.
Samkvæmt fréttatilkynningu félagsins er tilgangurinn með þessari sölustarfsemi að ,,vekja neytendur kynlífsiðnaðarins til umhugsunar um hlutverk sitt innan iðnaðarins þar sem þeir mynda eftirspurn eftir kvenlíkömum.“
Í fréttum Stöðvar 2 í kvöld sagði einn fulltrúi Femínistafélagsins þetta með tilgang barmmerkjasölunnar:
,,Það sem mig langar til að segja við karla sem koma og kaupa sér konur á svona nektardansstöðum, að mig langar til að vekja þá til umhugsunar um það að miðað við mansalsiðnaðinn sem er í gangi í heiminum í dag að þá eru töluverðar líkur á því að konur sem koma hingað til Íslands að dansa hafi verið seldar mansali. Líkurnar benda til þess að einhver þeirra hafi verið seld mansali. Þess vegna vil ég hvetja þá til þess að hugsa sig um þegar þeir fara inn á svona staði að stúlkan sem er að dansa fyrir framan þá getur hugsanlega hafa verið seld mansali og þeir geta aldrei verið vissir.“
Gott og vel. Mansal, eða nútímaþrælahald er auðvitað viðbjóðslegt og verðugt viðfangsefni að berjast gegn því. Það er hins vegar fáránlegt að ráðast á nektardansstaði í þeirri baráttu nema vitað sé að viðkomandi staður hafi tekið þátt í mansali. Það er nefnilega ekkert að því dansa eða horfa á nektardans ef engin þvingun á sér stað.
Rétt eins og við eigum að leggja okkur fram við að sniðganga fataverslanir, veitingastaði og aðra þjónustu sem nýtir sér börn og/eða býður starfsmönnum sínum í þriðja heiminum upp á hræðileg laun og mannskemmandi vinnuaðstæður. Við eigum samt ekki að sniðganga alla þá sem bjóða upp á slíkar vörur. Bara þá sem hafa brotið af sér. Annað er auðvitað siðlaust.
Ef Femínistafélagið myndi reyna að gera eitthvað uppbyggilegt, eins og að reyna að finna og ná til þeirra kvenna sem hafa verið seldar mansali (ef einhverjar eru hér á landi) og aðstoða þær við að komast úr þeim aðstæðum myndi ég glaður aðstoða félagið. Femínistarnir virðast hins vegar vilja banna þessa starfsemi og gera lítið úr þeim sem vinna við og sækja nektardansstaði. Öllum, þar á meðal nektardansmeyjunum sjálfum, til mikillar bölvunar.
Hver er þín skoðun?
2 athugasemdir
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
- Verður staða lífsskoðunarfélaga jöfnuð?
- Um kjánatrukka og aðdáendur þeirra
- Heimsendir hjá iðjuþjálfum?
- Hamfarakenningin
Segðu mér annars eitt. Hvar eiga þessar stelpur að finna þær konur sem hafa verið seldar mansali? Í bónus? Er ekki líklegra að þær sé að finna á nektardansstöðum? Nú tek ég fram að ég er ekki hrifin af því að hengja bakara fyrir smið í þessum efnum eins og við höfum ábyggilega rætt. Þessari hugsun skaut bara upp í kollinn á mér þegar ég las þetta hjá þér:) Skil samt alveg punktinn hjá þér.
Ég myndi athuga í ,,Gripið og greitt“. Nafnið gefur til kynna að þar séu þær helst að finna
.
Að öllu gamni slepptu þá er örugglega mjög sniðugt að leita þeirra á nektardansstöðum. Þess vegna hef ég hvatt femínista til að bjóða þessum stúlkum aðstoð. Þær gætu gefið öllum dansmeyjunum dreifimiða með upplýsingum hvar hægt sé að leita sér hjálpar o.s.frv.
Það væri í það minnsta mannlegra og uppbyggilegra en að selja ,,Ég kaupi konur“ merki fyrir utan þessa staði eða vinna að því skipulega að gera lítið úr konum sem vinna á þessu sviði með því stimpla vinnu þeirra siðlausa. Þetta er mín skoðun. Call me weird!