Góð grein á politik.is


Hinrik Már Ásgeirsson, vinur minn, skrifaði í dag góða grein á www.politik.is. Þar fjallar hann um vændi og hversu fáránlegt það er að banna það. Í staðinn fyrir að einbeita sér að orsök vandans og takast á við hana er ákveðið að banna allt og ekkert og gera þá sem eiga jafnvel um sárt að binda að glæpamönnum.


Nýlega var vændiskona sem hafði, ef ég man rétt, níu milljónir á ári í laun sakfelld* fyrir vændi. Hvern er verið að vernda? Ég býst ekki við því að ég verði nokkurn tímann svo hálaunaður.

Annað gott dæmi um ofstæki íhaldsmanna er herferð þeirra gegn nektardansstöðum.

*Vændiskonan hefur verið ákærð, en ekki enn sakfelld, eins og Matti bendir réttilega á. Maður á ekki að deila hugsunum sínum of mikið þegar maður er þreyttur :)

Ítarefni:
Stórhættuleg verndarhendi yfirvalda

Siðferðilegur fasismi

Frelsisskerðing í nafni siðferðis

Hinn fullkomni heimur

Meira um klám

Kynlífsþrælkun á Íslandi?

Um nekt og aðrar freistingar holdsins

Hver er þín skoðun?

Efnisorð:


7 athugasemdir

  1. Kannski sveik hún undan skatti, Bjarni, en á móti kemur að það er bannað í lögum að hagnast af vændi annarra. Það gæti einnig átt við um Ríkissjóð. Sennilega er helsti „glæpur“ hennar sá að vekja almenna athygli fjölmiðla á þeirri staðreynd að vændi er stundað á Íslandi.

  2. Það sem skiptir mestu máli hér eru markmiðin með aðgerðum yfirvalda. Í frjálsu lýðræðissamfélagi hljóta markmiðin að vera þau að tryggja frelsi einstaklingsins. Frelsið verður ekki tryggt án: verndar frá óprúttnum aðilum, aðgangs að góðri menntun og öflugu öryggisneti.

    Það er nefnilega ekki nóg að vera frjáls undan oki stjórnvalda eins og margir frjálshyggjumenn halda fram. Menn þurfa einnig að vera frjálsir undan oki náungans og þess umhverfis sem þeir alast upp í. Þetta er í það minnsta hugsjón mín sem frjálslyndur jafnaðarmaður.

    Án nokkurs efa eru til konur (og menn) sem stunda vændi af sökum neyðar. Augljóslega. Sjálfur vann ég einn vetur við að þrífa klósett í Hagkaupum, augljóslega vegna fjárhagslegrar neyðar. Hafið þið heyrt um hamingjusaman klósetttækni? Auðvitað ekki, enda væri það ,,míta“ ef svo væri.

    Það er sorglegt og átakanlegt að vita til þess að fólk þarf að gera hluti sem því finnst ógeðfellt bara til þess að hafa ofan í sig og á. Ef pólitíkusar myndu einbeita sér að því að berjast gegn slíkum ömurlegum aðstæðum fólks væri heimurinn betri. En það er of erfitt, tekur of mikinn tíma, og ekki nógu vinsælt og grípandi fyrir fjölmiðlaheiminn.

    Þess vegna er ákveðið að banna allt og ekkert. Oft með hræðilegum afleiðingum…

  3. Vildi nú bara benda á að það var ekki íhaldið sem bannaði eða lokaði nektarstaði í borginni heldur R-listinn! Nema að þeir séu nokkuð íhaldið :)

  4. Það er nú bara búið að ákæra þessa blessuðu vændiskonu í Hafnafirði en ekki sakfella þó vafalítið sé stutt í það.

    Er þetta ekki einmitt dæmi um annan flöt á þessu máli. Varla er það „neyðin“ sem rekur fólk út í þetta þegar það er búið að þéna níu milljónir. Getur verið að þarna sé bara tækifæri fyrir þessa konu að þéna pening sem henni bíðst ekki annars staðar. Sumir myndu kalla þetta græðgi en ég er ekki sammála, ég myndi gera ýmislegt fyrir níu milljónir (skattfrjálst að auki).

    Kynlíf er svo mikið tabú hjá íhaldsmönnum (allra flokka) að engum getur dottið í hug að til sé fólk sem sé tilbúið að selja blíðu sína. Þetta er ástæðan fyrir því að Kolbrún Halldórs er sífellt að berjast gegn „mítunni“ um hamingjusömu hórunni. Hamingjusama hóran má ekki vera til.

    N.b. ég er ekki að andmæla því að til sé fólk sem neyðist til að stunda vændi heldur held ég bara að til sé fólk sem stundar vændi vegna þess að það vill það.

  5. Sammála þér Matti.

    Margir veigra sér meira að segja við að láta út úr sér orðið hóra. Hvernig á það fólk að taka á vanda þeirra sem sannarlega eiga um sárt að binda ef það lítur niður á það?

    Varðandi 9millu hóruna þá sé ég ekki að hún hafi framið nokkurn glæp? Er einhver að gera tilkall til peningana? nema ríkið kannski? Ef einhver getur bent mér á fórnarlamb í þessu máli þá bíð ég spenntur…

    Menn ættu að samgleðjast þegar hórur ná að gera það gott af eigin ásetningi. Ekki handtaka menn forstjóra fyrir að ganga of vel.

    Kveðja,
    Hinrikurinn

  6. Hvar er glæpurinn? Nú, hún sveik augljóslega undan skatti. ;-)

  7. Já enda gagnrýndi ég það harðlega og fékk samþykkta ályktun hjá UJ vegna ofstækisins. Það mátti þó alls ekki samþykkja ályktunina fyrr en eftir kosningar! Sem mér fannst auðvitað fáránlegt. En svona er pólitíkin.

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.