Fyrsta útiskokk sumarsins


Ég ákvað að skella mér út að hlaupa í dag. Það er frábært veður úti, ef við undanskiljum aðeins of mikinn vind, og tilvalið til að nota í æfingar. Ég hljóp heiman frá mér, stuttan hring um Grafarvoginn og svo að Veggsporti.


Þar tók ég nokkrar vel valdar æfingar og lagði svo af stað aftur heim. Þetta var frábær æfing og virkilega gaman að hlaupa útí náttúrunni. Ég veit ekki með ykkur en mér tekst alltaf að hugsa heilmikið þegar ég er að æfa. Ég hugsa um lífið og tilveruna, framtíðina og kemst alltaf af mögnuðum niðurstöðum. Verst að þær eru sjaldan eins magnaðar þegar ég er búinn að teygja á og fara í sturtu. En hvað um það, þetta var gaman.

Hver er þín skoðun?

Efnisorð:

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.