Skilaboð til örvita


Ég lenti í þeirri óskemmtilegu reynslu að brotist var inn í bílinn minn um helgina. Snillingurinn sem braust inn tók reyndar ekkert merkilegt. Bara alla skrifuðu og rispuðu geisladiskana mína EN SKILDI EFTIR GRÆURNAR. Ég hefði nú haldið að menn sem leggja það á sig að brjótast inn í eigur annarra myndu setja markið hærra en að stela gömlum þungarokksdiskum (+ nokkrum diskum með Savage Garden).


En fyrst ég er byrjaður að tala um örvita, þá langar mig líka til að senda jeppakallinum sem gerði STÓRA dæld á bílinn minn fyrir nokkrum vikum kveðjur: Það er almenn kurteisi borga fyrir skemmdir sem maður veldur!!! En ætli þú sért ekki of ríkur til að bera ábyrgð á eigin gjörðum.

p.s. Þú sem stalst diskunum mínum. Þú kannast ekki við neitt af þeirri tónlist sem þú stalst. Þeir tónar sem þú telur þig kannast við (og líklegast fílar) eru rispur sem geislaspilarinn þinn skilur ekki. Verst að þú stalst ekki mínum. ENJOY!

Hver er þín skoðun?

Efnisorð:

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.