Örn Árnason


Ég var að horfa á skemmtilegt viðtal Jóns Ársæls við grínararann fræga Örn Árnason í þættinum Sjálfstætt fólk á Stöð 2. Þegar ég var að horfa rifjaðist upp fyrir mér þegar ég reyndi að selja Erni DV fyrir utan Hlemm þegar ég var u.þ.b. tólf ára.


Ég man að ég var rosa spenntur að sjá Örn Árnason þarna og var fljótur að ganga að honum og bjóða honum DV. Því miður var Örn í eitthvað slæmu skapi og sagði ,,Nei takk“ með mjög hvössum tón. Mér brá svo mikið að ég var með hnút í maganum það sem eftir var dagsins. Síðar skildi ég að grínistar eru auðvitað venjulegt fólk og eru stundum í vondu skapi eins og við hin…

Hver er þín skoðun?

Efnisorð:

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.