Þarf Björgvin að óttast hermdaraðgerðir?


,,Hann er búinn að vera!!!“. Þessi reiðilegu orð heyrðust líklegast um alla Evrópu þann 12. september 2001. Þið ykkar sem eru ennþá að velta því fyrir ykkur í hvaða ógnarhljóð þetta voru, get ég upplýst ykkur að þetta var hann Haukur Örn, þáverandi varaformaður Heimdalls og núverandi formaður Frjálshyggjufélagsins.


Tilefnið var að þá verðandi fyrrverandi vinur Hauks (flókið?), Björgvin Guðmundsson, þá formaður Heimdallar og fréttamaður Fréttablaðsins, hafði hringt í Hauk til að fá upplýsingar um ástandið í Brussel eftir hryðjuverkin í Bandaríkjunum daginn áður. Ég, Haukur og nokkrir aðrir ungliðar úr öllum stjórnmálaflokkum nema VG vorum nefnilega saman í NATO ferð þegar ósköpin dundu yfir.

Eins og sönnum fréttamanni sæmir tókst Björgvini að ,,misskilja“ allt það sem Haukur sagði og hafði eftir honum þvílíka vitleysu að ég hef sjaldan lesið annað eins. Eitthvað á þá leið að ,,Belgar óttist hermdaraðgerðir“! Þegar Haukur frétti hvað félagi hans hafði skrifað varð hann alveg brjálaður (á húmorískann hátt reyndar) og lofaði í fjölda manna viðurvist að nú væri út um frama Björgvins. Ég hef sjaldan hlegið eins mikið…

Rétt um ári síðar er Björgvin ekki lengur formaður Heimdalls og Haukur hefur yfirgefið Sjálfstæðisflokkinn, stofnað Frjálshyggjufélagið og ætlað að bjóða fram gegn Björgvini og félögum í næstu kosningum.

Ljóst er að félagi Haukur er langrækinn og orðheldinn maður.

Hver er þín skoðun?

Efnisorð:

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.