Mig vantar vinnu
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Dagbók
Viðbrögð: Ummæli (
Undanfarnar vikur hef ég verið að sækja um vinnu hér og þar en lítið hefur gengið hingað til. Mig fer sárlega að vanta starf. Ég vonast auðvitað til að fá eitthvað fyrir alla vinnuna sem ég hef lagt í heimildarþáttinn um einelti, en ég get ekki átt von á því strax. Ef þú lesandi góður veist um starf sem passar við mig þá máttu endlega láta mig vita! Sjá: Ferilskrá.
Nánar um mig:
Ég er að leita að áhugaverðu starfi fyrir veturinn og hugsanlega að framtíðarstarfi. Hef nokkuð víðtæka þekkingu á tölvumálum auk þess sem ég er mikill áhugamaður um fjölmiðlun, félagsstörf og mannleg samskipti svo eitthvað sé nefnt.
Ég er m.a. með MCP (Microsoft Certified Professional) og MCSE (Microsoft Certified System Engineer) gráður í Windows 2000 stýrikerfinu frá Microsoft.
Árið 2001 starfaði ég hjá ANZA (áður Álit) sem kerfisþjónustumaður og í því starfi þjónustaði ég m.a. Windows 98/NT/2000, Lotus Notes og Microsoft Exchange notendur.
Ennfremur hef ég mikla reynslu af störfum sem tengjast ritstörfum, veAMönnun, félagsstörfum og mannlegum samskiptum.
Ég er vefstjóri, hönnuður, pistlahöfundur og ritstjóri vefritsins Skoðunar (www.skodun.is). Þar að auki sit ég í ritstjórn www.kreml.is og er vefstjóri, pistlahöfundur og ritstjóri www.sidmennt.is. Ég hef því töluverða reynslu af því að skrifa pistla, fréttir, viðhalda vefsíðum og starfa sjálfstætt. Hægt er að nálgast ritverk mín á www.skodun.is.
Ég er varaformaður og almannatengslafulltrúi Siðmenntar. Starfaði sem framkvæmdarstjóri Ungra jafnaðarmanna og vefstjóri www.samfylking.is þar til 1. júlí síðastliðinn. Starf framkvæmdarstjóra UJ fól m.a. í sér að halda fyrirlestra um ýmis mál.
Síðustu mánuði hef ég starfað sjálfstætt við að framleiða heimildarþátt um einelti í grunnskólum. Hægt er að lesa meira um þáttinn á www.skodun.is/einelti. Áætlað er að þátturinn verði tilbúinn í október 2002.
Ef þú telur þig geta nýtt þér starfskrafta mína þá bið ég þig um að hafa samband við mig í síma 898-7585 eða með því að senda mér tölvupóst á siggi@skodun.is. Ég hef sérstakan áhuga á störfum sem fela í sér tölvuvinnslu, ritstörf og/eða mannleg samskipti. Er heiðarlegur og samviskusamur í starfi.
Sjá nánar: Ferilskrá
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Grimmd – Sögur af einelti
- Að kunna að bera ábyrgð
- Titanic og Titan: Skáldskapur verður að raunveruleika
- Þegar Ísland breyttist í alræðisríki: Li Peng, Jiang Zemin og Falun Gong
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
Hver er þín skoðun?