Öðlingsdrengur ritstjóri Frelsi.is


Jón Hákon Halldórsson, Heimdellingur, verðandi sálfræðingur, og ágætur vinur minn er orðinn ritstjóri Frelsi.is. Ég óska honum hjartanlega til hamingju með það! Hann á eftir að standa sig vel þar trúi ég.


Jón Hákon er, eins og svo margir, frjálslyndur jafnaðarmaður sem finnur sig best í Sjálfstæðisflokknum, þrátt fyrir sterka íhaldsvinda sem þar blása. Hann mótmælir því kannski sjálfur að hann sé frjálslyndur jafnaðarmaður, enda hægt að skilgreina það hugtak á mismunandi vegu. Sem best sem ég veit er hann á móti forsjárhyggju en fylgjandi ákveðnu félagslegu stoðkerfi (það var hann í það minnsta einu sinni) og því leyfi ég mér að uppnefna hann svona. Vonandi fyrirgefur hann mér

En hvað um það? Til hamingju félagi!

Hver er þín skoðun?

Efnisorð:

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.