Baráttumaður gegn forsjárhyggju
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Dagbók
Viðbrögð: Ummæli (
Ég var ekki alveg sammála Gunnari Birgissyni í baráttu hans fyrir boxi en ég viðurkenni fúslega að hann á ágæta spretti af og til. Hann berst í það minnsta gegn forsjárhyggju. Í frétt á Vísi.is kemur fram að hann er andvígur banni við einkadönsum í Kópavogi. ,,Ef bæði dansarinn og sá sem greiðir gerir þetta af fúsum og frjálsum vilja þá finnst mér að yfirvöld eigi ekki að vera að skipta sér af því“.
Hann bendir einnig á, eins og undirritaður hefur reyndar einnig margoft gert, að með því að banna einkadans sé jafnvel verið að auka líkur á því sumar stúlkurnar stundi vændi.
Það er sárt fyrir frjálslynda jafnaðarmenn að horfa uppá íhalds- og forsjárhyggjufólkið innan Samfylkingar berjast fyrir því að banna allt og ekkert. Getur þetta fólk bara ekki farið í Vinstri græna? Hvenær ætla íhaldsmenn (allra flokka) að skilja að hið fullkomna samfélag verður ekki búið til með boðum og bönnum, heldur með frelsi og réttlæti.
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Grimmd – Sögur af einelti
- Að kunna að bera ábyrgð
- Titanic og Titan: Skáldskapur verður að raunveruleika
- Þegar Ísland breyttist í alræðisríki: Li Peng, Jiang Zemin og Falun Gong
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
Hver er þín skoðun?