Stórhættuleg verndarhendi yfirvalda


Það er orðið opinbert. Dómsmálaráðherra hefur samþykkt og skrifað undir bann við einkadönsum á svokölluðum nektardansstöðum borgarinnar. Þessi gjörningur yfirvalda sýnir okkur a.m.k. tvennt. Í fyrsta lagi að yfirvöldum er alveg sama um stjórnarskrá Íslands og þann mikilvæga rétt að allir séu jafnir fyrir lögum. Í öðru lagi er augljóst að yfirvöldum gæti ekki verið meira sama um hagsmuni þeirra sem vinna á nektardansstöðunum, sérstaklega hagsmuni þeirra sem stunda þessa atvinnu af einhvers konar neyð.

Hverja er verið að vernda?
Það er deginum ljósara að ríkisvaldið er að skapa neyð með þessum aðgerðum. Neyð sem jafnvel og líklega mun reka stúlkur út í vændi. Ef sumar þeirra sem vinna á nektardansstöðum borgarinnar eru að dansa einkadans vegna fjárhaglegrar neyðar, eins og yfirvöld halda oft fram, hvað munu þær þá gera nú? Ef raunveruleg fjárhagsleg neyð er fyrir hendi, þá bjarga þær sér varla með því að vinna í Bónus eða á skrifstofu Dómsmálaráðherra. Nei, ætli eina lausnin fyrir sumar þeirra sé ekki að stunda vændi, einhversstaðar bak við tjöldin og í skítugum kjöllurum þar sem enginn er til að vernda rétt þeirra. Ætli borgaryfirvöld og hæstvirtur dómsmálaráðherra telji það ekki bara vera ásættanlegan fórnarkostnað? Þeim hefur þó allaveganna tekist að koma í veg fyrir ,,ógeðslegan“ einkadans.

Ofangreindar aðgerðir yfirvalda eru góð dæmi um stórhættulega verndarhendi yfirvalda. Yfirvöldum virðist vera alveg sama um einstaklingana sem eru að reyna að vinna fyrir sér í þessum atvinnugeira. Eina sem skiptir þá máli er að vernda ferkantaða heimsmynd smáborgarans þar sem himnaríki verður til með boðum og bönnum. Sorglegt og um leið stórhættulegt.

Þrælar almenningsálits
Ef stjórnmálamenn hefðu einhvern vott af umhyggju fyrir umbjóðendum sínum og hugrekki til að berjast fyrir bættum lífskjörum þeirra myndu þeir ekki bregðast við eins og dómsmálaráðherra hefur nú gert. En umhyggjuna skortir og stjórnmálamenn virðast almennt skorta hugrekki til að berjast fyrir réttlæti en eru þess í stað þrælar almenningsálits.

Með banninu á einkadönsum hefur stjórnarskráin að öllum líkindum verið brotin, aðstaða nektardansmeyjanna verið stórlega sköðuð, ýtt hefur verið undir ólöglegt vændi og eigendum nektardansstaða líklegast verið afhent óútfyllt ávísun. Greiðendur eru ég og þú!

Hvar værum við stödd án verndarhandar yfirvalda?

Hver er þín skoðun?

Efnisorð:

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.