Á leið til Hollands
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Dagbók, Ferðalög
Viðbrögð: Ummæli (
Ég er að fara á tvær ráðstefnur á Hollandi. Ég fer út næsta sunnudag og kem aftur heim 10. júlí. Ráðstefnunnar eru haldnar á vegum International Humanist and Ethical Union (IHEU) sem eru alþjóðleg samtök siðrænna húmanista og fer ég sem fulltrúi Siðmenntar. Fyrri ráðstefnan er svokallað ungliðaþing þar sem ungir húmanistar víðs vegar að úr heiminum hittast og ræða mannréttindi og frelsi til ólíkra lífsskoðana. Síðan tek ég þátt í 50 ára afmælisþingi IHEU. Þetta verður án ef bæði lærdómsrík og skemmtileg ferð. Síðustu fjóra dagana ætla ég svo að eyða í að skoða mig um í Amsterdam. Hrafnkell félagi minn sem stundar nám þar var svo góður að leyfa mér að gista þannig að kostnaðurinn helst í lágmarki. Sem betur fer þar sem ég á ekki mikinn pening núna.
Ef ég kemst í tölvu úti þá getur verið að maður birti einhverjar magnaðar ferðasögur hér
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
- Verður staða lífsskoðunarfélaga jöfnuð?
- Um kjánatrukka og aðdáendur þeirra
- Heimsendir hjá iðjuþjálfum?
- Hamfarakenningin
Hver er þín skoðun?