Góð ályktun!
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Klámvæðing, Vísun
Viðbrögð: Ummæli (
Eftirfarandi ályktun var samþykkt á stjórnarfundi Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík mánudaginn 10 júní 2002.
Ályktun um starfsemi nektardansstaða
Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík (UJR) harma þá ákvörðun borgaryfirvalda að banna einkadansa á svokölluðum nektardansstöðum borgarinnar. Ástæða bannsins eru m.a. ,,sterkar vísbendingar um að vændi þrífist í skjóli einkadansins”. UJR telja aldrei réttlætanlegt að refsa mönnum eða fyrirtækjum vegna
gróusagna eða ,,vísbendinga”. Þar að auki bendir allt til þess að gjörningur borgaryfirvalda sé ólöglegur þar sem bannið brýtur klárlega gegn 75. grein stjórnarskrár Íslands þar sem segir:
,,Öllum er frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa. Þessu frelsi má þó setja skorður með lögum, enda krefjist almannahagsmunir þess. Í lögum skal kveða á um rétt manna til að semja um starfskjör sín og önnur réttindi tengd vinnu.”
Mönnum skal refsað fyrir að brjóta lög, ekki fyrir grun um að brjóta lög
Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík minna einnig á að starfsmenn nektardansstaða eru líka fólk sem er umhugað um æru sína, og því ekki við hæfi að stjórnmálamenn bendli þá beint eða óbeint við lögbrot. Ungir jafnaðarmenn hvetja yfirvöld til að viðhalda lögum í landinu og refsa þeim sem sannarlega brjóta lögin með viðeigandi hætti en benda um leið á að í lýðræðisþjóðfélagi eru allir menn jafnir fyrir lögum og jafnframt saklausir þar til sekt þeirra er sönnuð.Ef banna á starfsemi nektardansstaða vegna gruns um að þar þrífist vændi þá hljóta yfirvöld næst að banna alla þá skemmtistaði þar sem grunur er um að seld hafi verið ólögleg eiturlyf eða þar sem menn hafa verið beittir líkamlegu ofbeldi. Þar sem kvartanir vegna hinna ýmsu ,,hefðbundnu“ skemmtistaða eru mun fleiri en gagnvart nektardansstöðunum og þar sem ólöglegt athæfi hefur sannanlega oftar viðgengist á þeim stöðum þar sem nekt kemur ekki við sögu þá hljóta yfirvöld að banna alla þá skemmtistaði líka, eða láta í það minnsta flytja alla þá staði sem grunaðir eru út fyrir miðbæjarmörkin.
Í núverandi lagaumhverfi er hórmang, eiturlyfjasala og þrælahald bannað. Því er eðlilegt að þeir aðilar sem stunda slíka iðju séu kærðir og dregnir fyrir dóm, algerlega óháð því hvort þeir sem eru sekir eru tengdir nektardansstöðum, almennum skemmtistöðum eða hvort þeir reka bakarí. Glæpur er glæpur óháð því hvar hann er framinn. Það er því alger óþarfi að banna nektardansstaði sérstaklega vegna ofangreindra glæpa. Staðirnir verða nefnilega sjálfkrafa ólöglegir ef ólöglegar athafnir eru vísvitandi stundaðar þar. Betur færi á því að íslensk stjórnvöld endurskoði vinnuréttarlöggjöfina sem snýr að vinnu útlendinga á Íslandi og sporni gegn meintum lögbrotum með almennum aðgerðum í stað þess að kippa fótunum undan löglegri atvinnugrein.
Að gefnu tilefni vilja Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík taka það skýrt fram að með þessari ályktun er félagið ekki að leggja blessun sína yfir vændi eða hvetja til þess að það sé stundað.
Stjórn Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Grimmd – Sögur af einelti
- Að kunna að bera ábyrgð
- Titanic og Titan: Skáldskapur verður að raunveruleika
- Þegar Ísland breyttist í alræðisríki: Li Peng, Jiang Zemin og Falun Gong
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar

Hver er þín skoðun?