Siggi í sjónvarpinu
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Stjórnmál
Viðbrögð: Ummæli (
Ég var í Kringlunni eftir hádegi í dag að dreifa kosningaáróðri fyrir R-listann þegar ,,Heitur Teitur“ kom að mér ásamt myndatökumanni og spurði mig hvað mér þætti um lögin um ríkisábyrgð handa deCode. Eins og þeir sem sáu viðtalið í fréttum Stöðvar 2 í kvöld vita þá er ég ekki alls kostar sáttur við þennan gjörning alþingismanna (sjá nána hér: Rússnesk rúlletta með fé skattgreiðenda). Mér fannst samt verst að Teitur klippti út besta hlutann af viðtalinu.
Hann spurði mig í lokinn hvort ég hefði einhver skilaboð handa Dabba krull og ég sagði: ,,Já, ég legg til að hann taki sig til og lesi stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins“. Æji það er eitthvað svo sorglega fyndið þegar stjórnmálamönnum tekst að tala þvert gegn eigin hugsjónum…
…Já, by the way. Þá verð ég aftur í Kringlunni á morgun milli 13-17 ef þið hafið áhuga á að hitta mig.
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Grimmd – Sögur af einelti
- Að kunna að bera ábyrgð
- Titanic og Titan: Skáldskapur verður að raunveruleika
- Þegar Ísland breyttist í alræðisríki: Li Peng, Jiang Zemin og Falun Gong
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
Hver er þín skoðun?