Misbeitt vald


Eins og fram kemur í þessari grein (Siðferðilegur fasismi) hryllir mig við þeirri ákvörðun borgarstjórnar að ætla banna svokallaða einkadansa á nektardansstöðum borgarinnar. Mér finnst það einnig afar sorglegt að næstum því allir stjórnmálamenn landsins, úr öllum stjórnmálaflokkum, vilja hefta starfsemi þessara staða. Þeir vilja flytja þá út fyrir borgarmörkin, banna nektardönsurunum að dansa nöktum (sérstaklega gáfuleg hugmynd – NOT) eða jafnvel banna rekstur slíkra staða með öllu.


Ég hef fjallað um þessa valdníðslu oft áður. Ekki vegna þess að ég er sérstakur aðdáandi þessara staða, heldur vegna þess að ég tel að rétt skuli vera rétt, og að allir eigi að njóta sannmælis og sömu réttinda. Það er einfaldlega óþolandi þegar stjórnmálamenn fórna réttlætinu á altari pólitískrar rétthugsunar. Flestir þeir sem berjast gegn nektardansstöðum og klámi almennt gera það með einhver siðferðissjónarmið í huga. Þegar þessir aðillar taka upp á því að banna, ritskoða og rægja hefur þeim tekist að ýta undir það sem þeir vilja koma í veg fyrir, þ.e. siðleysið.

Hver er þín skoðun?

Efnisorð:

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.