Siðferðilegur fasismi
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Klámvæðing
Viðbrögð: Ummæli (
Sú einarða áætlun stjórnmálamanna að leggja stein í götu nektardansstaða, ýmist með því að banna einkadansa eða flytja staðina nauðungarflutningum út fyrir miðbæjarmörkin getur seint kallast annað en fasismi. Þar sem ofbeldið er réttlætt með vísun til siðferðis og almannahagsmuna hlýtur þessi afstaða því að kallast siðferðilegur fasismi. Fordómar og ofbeldi eru aldrei réttlætanleg og skiptir þá engu hverjum eða hverju þeim er beint gegn.
Svo vitnað sé í orð ,,hæstvirtra“ borgarfulltrúa þá er ástæða þess að þeir vilja banna einkadans m.a. sú að sterkar vísbendingar séu um að vændi þrífist í skjóli þeirra. Því sé hér um tvenns konar hagsmuni sem vegast á, þ.e. atvinnufrelsi og almannahagsmuni sem m.a. lúta að ,,velsæmi“ og þeir síðarnefndu vegi þar þyngra á metunum.
Þær ,,sterku vísbendingar“ sem borgarfulltrúar nefna eru fyrst og fremst orðrómur því svo best sem undirritaður kemst næst þá hefur enginn nektardansstaður verið ákærður fyrir að bjóða upp á vændi, hvað þá sakfelldur. Nú eru vissulega lög í landinu sem banna hórmang og því fullkomlega eðlilegt að refsa öllum þeim sem staðnir eru verki við að brjóta þau lög, rétt eins og fólki er almennt refsað fyrir að brjóta lög. En það að skerða frelsi fólks vegna gruns, orðróms og gróusagna er svo yfirmáta siðlaust að undirritaður getur vart lýst vanþóknun sinni.
Það ætti öllum að vera augljóst að það ofbeldi sem yfirvöld sýna í þessum málum hefur ekkert með réttlæti að gera.
Eitt skal yfir alla ganga
Það er ein mikilvægasta skylda yfirvalda að tryggja jafnræði meðal almennings, að tryggja að réttindi eins hóps séu ekki fótum troðin af öðrum. Þegar yfirvöld eru farin að beita sér fyrir mismunun en ekki gegn henni hafa þau sjálfkrafa tapað stöðu sinni sem verndari almannahagsmuna.
Ef banna á starfsemi nektardansstaða vegna gruns um að þar þrífist vændi þá hljóta yfirvöld næst að banna alla þá skemmtistaði þar sem grunur er um að seld hafi verið ólögleg eiturlyf eða þar sem menn hafa verið beittir líkamlegu ofbeldi. Þar sem kvartanir vegna hinna ýmsu ,,hefðbundnu“ skemmtistaða eru mun fleiri en gagnvart nektardansstöðunum og þar sem ólöglegt athæfi hefur sannanlega oftar viðgengist á þeim stöðum þar sem nekt kemur ekki við sögu þá hljóta yfirvöld að banna alla þá skemmtistaði líka, eða láta í það minnsta flytja alla þá staði sem grunaðir eru út fyrir miðbæjarmörkin.
Að sama skapi hljóta borgaryfirvöld að skoða það gaumgæfilega hvort ekki sé réttast að banna starfsemi ýmissa kristinna trúfélaga hér á landi. Eins og menn vita hafa fjölmargir þjónar kirkjunnar, víðs vegar um heiminn (þar á meðal Íslandi) orðið uppvísir að því að beita skjólstæðinga sína kynferðislegu ofbeldi (sem ekki má rugla saman við hugsanlegt vændi, sem fer fram með samþykki allra hlutaðeigandi). Skjólstæðinga sem stundum eru börn og aðrir ólögráða einstaklingar. Þar sem það ætlar að vera markmið yfirvalda að banna starfsemi nektardansstaða vegna þess að Gróa á leiti segir að á þeim sé stundað lögbrot þá geta yfirvöld ekki komist hjá því að banna starfsemi þar sem við vitum að lögbrot hafa verið framin.
Ef þú, lesandi góður, ert hneykslaður á þessum ummælum mínum þá er það gott. Því þá hefur þú áttað þig á því hvað það er fullkomlega fáránlegt að banna ákveðna starfsemi og brennimerkja alla starfsmenn ákveðinnar atvinnugreinar vegna gróusagna eða jafnvel sannanna um að sumir þeirra hafi brotið lög. Starfsmenn nektardansstaða eru líka fólk sem hefur tilfinningar og er umhugað um æru sínu, ekki síður en prestar. Þeir sem klæðast hempum við störf sín eiga ekki að njóta meiri mannréttinda en þeir sem kjósa að vinna störf sína í Adams- og Evuklæðunum. Í lýðræðisþjóðfélagi eru allir menn jafnir fyrir lögum og allir eru saklausir þar til sekt þeirra er sönnuð. Þeir sem halda öðru fram, með orðum sínum og/eða gjörðum geta seint talist baráttumenn frelsis, jafnréttis né bræðralags.
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Grimmd – Sögur af einelti
- Að kunna að bera ábyrgð
- Titanic og Titan: Skáldskapur verður að raunveruleika
- Þegar Ísland breyttist í alræðisríki: Li Peng, Jiang Zemin og Falun Gong
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
Hver er þín skoðun?