Kominn í Blogg-umhverfi
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Dagbók
Viðbrögð: Ummæli (
Ég ákvað að setja dagbókarsíðuna mína í svona blogg-umhverfi til að auka líkurnar á því að ég nenni að uppfæra hana af og til.
Það getur verið svo mikið leiðindarvesen að setja þessar færslur allar í gegnum þungt vefsíðugerðarforrit. Ég veit samt ekki hvort ég hef nota þetta blogg lengi. Mér finnst of lítið af valmökuleikum í þessu. T.d. er aðeins hægt að setja ,,link“, ,,bold“ og ,,italics“ í þessu umhverfi með flýtihnöppum. Annað þarf maður að gera með html. Maður þarf að skrifa inn leiðindarkóða í hvert sinn sem maður ætlar að setja inn mynd og ef maður vill t.d. að tenglar opnist í nýjum glugga þá þarf maður að kóða það sérstaklega sýnist mér. Ég hélt satt að segja að þetta blogg-dæmi væri orðið mun fullkomnara. Kannski er ég bara ekki búin að læra á allt það sem hægt er að gera. Ef þú kannt einhver ,,trikk“ þá máttu endilega senda mér póst.
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Grimmd – Sögur af einelti
- Að kunna að bera ábyrgð
- Titanic og Titan: Skáldskapur verður að raunveruleika
- Þegar Ísland breyttist í alræðisríki: Li Peng, Jiang Zemin og Falun Gong
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
Hver er þín skoðun?