Frelsinu fórnað
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Ríkisumsvif
Viðbrögð: Ummæli (
Þeir þingmenn sem hafa eytt tíma Alþingis undanfarna daga í að ræða um meinta nauðsyn þess að sú gagnslausa stofnun Ríkissjónvarpið sýni frá HM í fótbolta í sumar ættu allir að skammast sín. Þessi umræða er móðgun við skattgreiðendur og umfram allt móðgun við það merka hlutverk sem ríkisvaldið hefur. Það er að tryggja frelsi einstaklingsins.
Í siðmenntuðu samfélagi er einhverskonar ríkisvald nauðsynlegt. Það verða að vera til lög sem tryggja mannréttindi einstaklinga og við þurfum lögreglu og dómsvald til þess að tryggja að farið sé að lögum. Þetta eru nánast allir sammála um. Einnig telja jafnaðarmenn að allir eigi að hafa aðgang að félagsþjónustu, menntun og heilbrigðisþjónustu.
Mannúðarrök og heildarhagsmunir
Þessi afskipti ríkisvaldsins af lífi fólks verða helst réttlætt útfrá mannúðarsjónarmiðum og þeim rökum að ákveðin umsvif ríkisins tryggi heildarhagsmuni þegnanna. Því miður virðist vera sem flestir stjórnmálamenn, hvar sem þeir standa í pólitík, hafi ekki hugmynd um þennan tilgang ríkisvaldsins og telja ríkið eiga heima á nánast öllum sviðum samfélagsins. Þeir telja að fátt eða jafnvel ekkert sé ríkinu óviðkomandi. Kjósendur eru margir hverjir orðnir svo vanir afskiptum ríkisvaldsins af ólíklegustu sviðum mannlífsins að þeir kippa sér ekkert upp við það þó ríkisstyrktur fótbolti sé helsta umræðuefni þingmanna þeirra.
Það ætti að leggja Ríkissjónvarpið niður enda er það óþarft og þjónar engum tilgangi öðrum en að vera þungur hlekkur í þrælskeðju skattgreiðenda. Það eru engum mannúðarsjónarmiðum fórnað ef ríkið hættir að tryggja almenningi aðgang að heimsmeistarakeppninni í fótbolta og ekki er heldur verið að fórna almannahagsmunum þó að Ríkissjónvarpið hætti að sýna þætti eins og Star Trek, ER, Sex in the City og Heim tískunnar eða í raun nokkuð annað það sem ríkisfjölmiðill hefur upp á að bjóða. Það hefur enginn einstaklingur sérstakann rétt á því sjá þetta sjónvarpsefni og því ætti enginn að vera skyldaður til að greiða fyrir það.
Stjórnmálamenn í klóm hagsmunahópa
Í hvert sinn sem heimsmeistarakeppnin í fótbolta eða önnur áhugamál er kostuð af hinum almenna vinnandi manni án samþykkis hans er frelsismarkmiðum ríkisvaldsins fórnað á altari sérhagsmuna.
Þegar stjórnmálamenn, sem ættu að berjast fyrir hag almennings, láta undan og nota krafta sína til að tala fyrir hönd sérhagsmunahópa hefur ríkisvaldið snúist upp í andhverfu sína og kemur í veg fyrir frelsi einstaklingsins en verndar það ekki. Slíkir stjórnmálamenn eiga ekki atkvæði okkar skilin.
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Grimmd – Sögur af einelti
- Að kunna að bera ábyrgð
- Titanic og Titan: Skáldskapur verður að raunveruleika
- Þegar Ísland breyttist í alræðisríki: Li Peng, Jiang Zemin og Falun Gong
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
Hver er þín skoðun?