Ævintýramyndir
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Dagbók
Viðbrögð: Ummæli (
Ég fór á Harry Potter í bíó um daginn ásamt vinkonu minni og skemmti mér konunglega. Myndin var mun betri en ég hafði búist við og nú hlakkar mig enn meira til þess að sjá fyrstu myndina um Lord of the Rings, Fellowship of the Rings, á hvíta tjaldinu.
Nýverið kláraði ég að lesa Fellowship of the Rings og er þetta ein sú magnaðasta skáldsaga sem ég hef lesið. Um leið og ég kláraði að lesa síðustu blaðsíðuna í bókinni tók ég upp bók númer tvö, The Two Towers, og byrjaði að lesa.
Til gamans kíkti ég á The Internet Movie Database og komst að því að þó nokkrir eru nú þegar búnir að sjá myndina og gefa henni einkunn. Þegar ég kíkti síðast voru 1018 búnir að gefa myndinni einkunn og fær hún að meðaltali 9.6 stig af 10 og er það, að ég held, það besta skor sem mynd hefur fengið þarna.
Hver kemur með í bíó?
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Grimmd – Sögur af einelti
- Að kunna að bera ábyrgð
- Titanic og Titan: Skáldskapur verður að raunveruleika
- Þegar Ísland breyttist í alræðisríki: Li Peng, Jiang Zemin og Falun Gong
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
Hver er þín skoðun?