Dream Theater


Tónlist hefur mikil áhrif á líf mitt og það er fátt sem kætir mig meira en að hlusta á góða tónlist. Í gær fékk t.d. sent nýjasta lag hljómsveitarinnar Dream Theater. Lagið kallast The Glass Prison og er ég búinn að hlusta á það nánast stanslaust síðan ég fékk það. Örugglega svona tíu sinnum. En það hlýtur að teljast ágætis afrek þar sem lagið er tæpar 14 mínútur að lengd. Þvílík tónlistarsnilld!


The Glass Prison mun vera eitt af þeim 6 lögum sem verða á nýja disknum þeirra, Six Degrees of Inner Turbulence sem kemur út í janúar á næsta ári. Þrátt fyrir að það verði aðeins 6 lög á Six Degrees of Inner Turbulence þá verður diskurinn engu að síður tvöfaldur. Á disk eitt verða fimm lög The Glass Prison, Blind Faith, Misunderstood, The Great Debate og Disappear en á disk tvö verður aðeins eitt lag Six Degrees of Inner Turbulence sem er hvorki meira né minna en 42 mínútur að lengd! Ég hlakka til!

Ef þú lesandi góður hefur ekki heyrt í þessu merka bandi mæli ég með að þú nælir þér í eintak af eftirtöldum diskum (Besti diskurinn að mínu mati er skráður fyrst o. s.frv.):

Images and Words
Eitt besta tónlistarverk allra tíma.

Awake
Frábær, en þú ekki alveg eins mikil snilld og I and W.

A Change of Season
Fyrst og fremst cover plata en inniheldur eitt frábært 23 mín. langt lag eftir DT A Change of Season.

Scenes From A Memory
Nýjasta afurð sveitarinnar. Góður diskur en tekur tíma að venjast honum.

When Dream and Day Unite
Fyrsti diskurinn þeirra og er hljómsveitin hér skipuð öðrum söngvara (ekki eins góðum) en er á öllum hinum diskunum.

Hver er þín skoðun?

Efnisorð:

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.