Atvinnuleit


Mér gekk vel í prófinu í dag, í raun mun betur en ég bjóst við að mér myndi ganga. Nú er ég semsagt orðinn bæði Microsoft Certified Professional (MCP) og Microsoft Certified System Engineer (MCSE). Þetta voru bæði erfið og leiðinleg próf og er ég því mjög feginn að vera búinn með öll þessi próf. Nú þarf ég hins vegar að finna mér áhugaverða vinnu. Ég ákvað því að setja ferilskránna (CV) mína inná vefinn ef einhver sem álpast inná þessar síður skyldi vera í leit að manni eins og mér í vinnu :) . Hver veit?

Hver er þín skoðun?

Efnisorð:

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.