Réttlæti
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Klámvæðing, Ríkisumsvif
Viðbrögð: Ummæli (
Á þriðjudaginn birti ég grein bæði á Pólitík og Skoðun þar sem fjallaði um tillögur meirihlutans í borgarstjórn þess efnis að banna nektardansstaði hér í borg og óréttlætinu sem þeim fylgir. Ég hvet ykkur til að lesa þessa grein.
Stundum er ég spurður hvernig ég nenni að berjast fyrir tilverurétt þessara staða. Myndi ég sakna þeirra svona mikið? Svarið við seinni spurningunni er nei. Ég hugsa að ég myndi nú ekki sakna þeirra mikið, þó ég viðurkenni að mér finnst stundum gaman að kíkja inn á slíka staði. Ástæðan fyrir baráttu minni er hins vegar einföld, ástæðan er réttlætið. Það særir réttlætiskennd mína þegar fólki er bannað að vinna vinnuna sína bara vegna þess að starf þeirra móðgar siðferðiskennd einhverra ráðamanna. Það særir líka réttlætiskennd mína þegar heil atvinnustétt er sökuð um spillingu og glæpi og sakfelld með almannarómi einum saman. Ég trúi því að fólk eigi að fá að gera það sem því sýnist svo lengi sem athafnir þess skaða ekki aðra á beinan hátt.
Yfirvöld hafa engan siðferðislegan rétt til þess banna einstaklingum að gera það sem þeim sýnist ef þeir eru ekki að skaða aðra. Svo einfalt er það. Það er ekki hlutverk yfirvalda að troða einu ákveðnu gildismati upp á fólk. Ekki ef ég fæ einhverju ráðið.
Á flakki mínu um vefritin í dag rakst ég fyrirsögn á Frelsi: ,,Bannað að skemmta sér um jólin“. Hér er verið að vísa í þær fáránlegu reglur sem veitingamenn þurfa að fara eftir yfir jólahátíðirnar. En samkvæmt lögum er skemmtanahald ekki aðeins bannað heldur ,,fortakslaust bannað“! Hvorki meira né minna.
Yfirvaldið setur okkur líka reglur um hvenær við megum vinna og hvenær ekki. Það er t.d. bannað að vinna á vissum hátíðisdögum kristintrúarmanna og skal vakin athygli á því að það er ekki kirkjan sem setur safnaðarmeðlimum sínum þessar reglur heldur eru það yfirvöld sem setja ÖLLUM landsmönnum þessar reglur. Fyrir nokkru fjallaði ég um þessi óeðlilegu afskipti ríkisvaldsins m.a. á Skoðun:
,,[Það] er í hæsta máta óeðlilegt að nokkrir bókstafstrúarmenn ákveði hvenær borgarar þessa lands megi vinna og hvenær ekki. Við skulum ekki gleyma því að ef kirkjan fengi að ráða þá væri einnig stranglega bannað að vinna á sunnudögum, enda er sunnudagur heilagur dagur í kristinni trú.
Réttur manna til frídaga er bundinn í kjarasamninga og myndi ekki skerðast þó aðskilnaður og ríkis og kirkju ætti sér stað. Hvenær fólk ákveður að taka sitt frí ætti að vera samningsatriði milli launþega og vinnuveitanda en ekki milli launþega og kirkjuyfirvalda.
Í Bandaríkjunum var hin svokallaða sunnudagslöggjöf, sem bannaði mönnum að vinna á sunnudögum, felld úr gildi vegna þrýstings þeirra sem ekki voru kristnir, einna helst gyðinga. Bókstafstrúaðir gyðingar gátu ekki, trúar sinnar vegna, unnið á laugardögum (sem er helgidagur þeirra) og var bannað af ríkinu að vinna á sunnudögum (helgidegi kristinna). Gyðingar og aðrir þeir sem héldu laugardaginn heilagan voru því neyddir til að taka sér frí í tvo daga í staðinn fyrir einn. Þetta þýddi augljóslega mikið óréttlátt fjárhagslegt tap sem menn gátu ekki sætt sig við til lengdar.
Sama gildir um íslensk lög sem banna mönnum að vinna á jólum og páskum. Hvers vegna ætti þeim sem ekki taka helgidaga kristinna alvarlega að vera bannað samkvæmt lögum að vinna fyrir sér og veita þjónustu á þessum dögum? Sérhver maður hlýtur að sjá óréttlætið í slíku fyrirkomulagi.“
Það er einnig umhugsunarefni að samkvæmt 125. gr. hegningarlaga er guðlast enn bannað með lögum á Íslandi og má dæma fólki í allt að þriggja mánaða fangelsi fyrir slíkt brot. Hvernig er það? Er guðlast ekki glæpur án fórnarlambs? Ég vona að ég eigi ekki þriggja mánaða fangelsisdóm yfir höfði mér vegna þessara orða.
Ég vona að yfirvöld hætti sem fyrst að skipta sér af málum sem koma þeim ekki við… Góða nótt.
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Grimmd – Sögur af einelti
- Að kunna að bera ábyrgð
- Titanic og Titan: Skáldskapur verður að raunveruleika
- Þegar Ísland breyttist í alræðisríki: Li Peng, Jiang Zemin og Falun Gong
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
Hver er þín skoðun?