Hirðfíflaviðtöl


Dabbi Krull, öðru nafni Davíð Oddsson forsætisráðherra var í svokölluðu drottningaviðtali hjá hinum ágæta penna og fjölmiðlamanni Agli Helgasyni í gær. Ég ætla ekki að gera eins og allir aðrir og kvarta yfir því að sir Davíð sé aldrei fenginn í viðtal nema hann sé einn með spyrlinum, því þannig á það vera. Dabbi er einfaldlega of mikill töffari til að vera þátttakandi í einhverju hringleikahúsi fáránleikans með einhverjum pólitískum peðum, þ.e. andstæðingum hans. Hann var frábær í gær. Var bæði hrokafullur par excellence og sýndi öllum hver veit best. Snillingur.


Ég leyfi mér samt að koma með tillögu. Hvernig væri að hætta að bjóða öllum þessum drottningum í einkaviðtöl en þess í stað bjóða einhverjum skemmtilegum einstaklingum sem almenningur þekkir lítið. Einhverjum sem þorir að hafa skoðanir. Það er til dæmis fullt af ungu fólki innan ungliðahreyfinga stjórnmálaflokkana sem hefur skemmtilegar og ögrandi skoðanir. Bara hugmynd.

Hver er þín skoðun?

Efnisorð:

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.