Afskipti þingmanna Samfylkingar af ungliðapólitík heldur áfram…


Óþolandi afskipti ákveðinna ónafngreindra aðila (sem við köllum hér X, Y og Ð) úr þingmannahópi og ellideild Samfylkingarinnar á þingi Ungra jafnaðarmanna í fyrra vakti verðskuldaða athygli í sumum fjölmiðlum landsins. Herra Ð tók hressilega til máls í einni málefnanefnd þingsins og kvartaði hástöfum yfir ályktun sem honum fannst ekki vera nógu mikið í anda stefnu Samfylkingar (hver svo sem hún er). Frú X tók undir með Ð og nánast froðufelldi af reiði um leið og hún lýsti því yfir (á hljóðstyrk sem var langt yfir hættumörkum) að umrædd ályktun væri ,,það heimskulegasta plagg sem hún hefði nokkurn tímann lesið“ og að höfundar ályktunarinnar ættu ekki heima í Samfylkingunni heldur í einhverjum öðrum flokki (sem við köllum hér D ). Síðan sást til ýmissa fulltrúa (sem við köllum Y) eldri kynslóðarinnar þegar þeir réttu upp hendur og KUSU um ályktanir ungliðanna…


Nú verður næsta þing UJ haldið eftir rúma viku eða 26.-27. október næstkomandi í húsnæði Eflingar að Sætúni 1. Hvet ég fólk til að kíkja á www.politk.is og skrá sig á þann gjörning. Þetta ætlar að verð mjög spennandi þing þar sem fréttastofa Fréttablaðsins (bls. 22 í dag) hefur aAMjúpað að engin önnur en Bryndís Hlöðversdóttir, alþingismaður og formaður þingflokks Samfylkingarinnar, ætli að bjóða sig fram gegn undirrituðum í stöðu varaformanns. Það virðist því allt benda til þess að ungliðar og ellismellir muni aftur takast á á þinginu eftir rúma viku. Spennandi…

p.s. ég hvet fólk til að mæta á þingið og kjósa MIG

p.s.s. sumt af því sem hér hefur verið ritað á við rök að styðjast!

Hver er þín skoðun?

Efnisorð:

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.