Talsmaður nýbúa?
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Dagbók, Fjölmenning, Fordómar
Viðbrögð: Ummæli (
Í gær fór ég í bæinn eins og svo oft áður og gerði heiðarlega tilraun til að skemmta mér. Þegar leið á kvöldið gekk að mér ungur maður, líklegast eitthvað í kringum 25 ára, og sagði við mig: ,,Ég verð að fá að spjalla við þig“. ,,Nú?“ sagði ég ,,Um hvað?“. ,,Þú ert talsmaður nýbúa er það ekki?“. ,,Nei!“ sagði ég með áherslum ,,Hvernig dettur þér það í hug?“. ,,Jú, þú ert alltaf í fjölmiðlum að verja hagsmuni þeirra…“ og svo hélt maðurinn áfram að tala út í hið óendanlega.
Ótrúlega oft hitti ég einhverja ,,þjóðernissinna“ og kynþáttahatara í bænum sem stöðva mig og vilja eiga orðastað við mig, sumir vilja eitthvað meira. Einn stoppaði mig sérstaklega til að sýna mér félagsskírteini sitt hjá Félagi íslenskra þjóðernissinna á meðan annar félagsmaður gerði tilraun til að ráðast á mig. Sá hætti reyndar strax við þegar hann uppgötvaði að ég var ekki einn á ferð. Hann var fullur, blindfullur.
Eins og svo margir vita þá neyddist ég til þess að kæra formann Félags íslenskra þjóðernissinna í vor eftir að hann hringdi í mig og hafði í hótunum við mig. Það var hreint ótrúleg lífsreynsla. Ég trúði varla mínum eigin eyrum þegar maðurinn hringdi og krafðist þess að ég skildi draga öll mín orð um hann og félagið hans til baka í fjölmiðlum. Að öðrum kosti skildi ég hljóta verra af. Ég hélt að svona gerðist bara í lélegum bíómyndum.
Fyrir þau ykkar sem ekki vita þá var kæran að lokum felld niður og ekkert gert. Ríkissaksóknar þótti ekki tilefni til að fara með málið lengra að þessu sinni. Mér er svosem sama. Þessir atburðir fengu ágætis umfjöllun í fjölmiðlum og ekkert hefur heyrst frá þessu sorglega félagi lengi. Það er ágætt. Um samskipti mín við íslenska þjóðernissinna getið þið lesið hér.
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
- Verður staða lífsskoðunarfélaga jöfnuð?
- Um kjánatrukka og aðdáendur þeirra
- Heimsendir hjá iðjuþjálfum?
- Hamfarakenningin
Hver er þín skoðun?