Skoðun
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Dagbók
Viðbrögð: Ummæli (
Ég hef ákveðið að byrja að skrifa á Skoðun aftur. Setti mína fyrstu grein í nokkra mánuði inn í gær. Síðan ég hætti að skrifa í vor hef ég verið stoppaður á förnum vegi af fjölmörgu fólki sem ég þekki ekki neitt sem hefur spurt mig hvenær við ætlum að byrja aftur að skrifa á Skoðun. Mér þykir vænt um hvað margir virðast kannast við ritið þrátt fyrir að við höfum aldrei auglýst það neitt né verið áberandi í fjölmiðlaumræðunni.
Ástæðunar fyrir því að við hættum að skrifa í vor voru margvíslegar, en fyrst og fremst var það þó mér að kenna. Ég var bæði upptekinn í vinnu og skóla, auk þess sem ég var þjakaður af persónulegum vandamálum, depurð og þunglyndi. Vandamál sem margir kannast því miður við.
Nú þegar mig er farið að langa til að skrifa aftur hafa þeir Binni (Brynjólfur Þór) og Kolli (Kolbeinn Hólmar) ákveðið að draga sig í hlé. Binni, nú fyrrum, meðritstjóri minn á Skoðun og minn nánasti vinur í dag er orðinn blaðamaður á Fréttablaðinu og hefur hann ákveðið að einbeita sér að því starfi, skiljanlega. Hann er kominn á rétta hillu að mínu mati, enda frábær penni. Ólíkt mér þá getur hann alltaf skrifað eitthvað gáfulegt á stuttum tíma. Hann semur snilldargreinar á kannski hálftíma. Ég þarf í það minnsta tvo klukktíma og stundum get ég alls ekki skrifað. Binna verður saknað. Kolli, sem er búinn að vera fastur penni á Skoðun lengi hefur einnig ákveðið að segja skilið við ritið í bili vegna anna.
Þannig að nú sit ég bara einn eftir. Það er reyndar ekki svo slæmt. Þegar Skoðun var upphaflega sett á netið í júní 1999 þá hét ritið Skoðun – heimasíða Sigurðar Hólm Gunnarssonar. Skoðun átti nefnilega að bara að vera staður þar sem ég gæti tjáð skoðanir mínar. Þegar ég sýndi Binna síðuna sem ég hafði hannað (sem leit allt öðruvísi út en Skoðun gerir í dag) þá vildi Binni endilega fá að vera með. Þannig að við ákváðum að taka „heimasíða Sigurðar Hólm Gunnarssonar“ út og setja „vefsíður um frelsi, jafnrétti og bræðralag“ inn í staðinn . (Ótrúlegt en satt þá hef ég fengið nokkur e-mail frá feministum þar sem þær kvarta undan notkun orðsins „bræðralag“!!!).
En hvað um það? Ég er því aftur orðinn einn með Skoðun og því er varla lengur um vefrit að ræða. Skoðun verður ekki uppfært oft í viku eins og áður. Kannski frekar einu sinni í viku, stundum oftar og stundum sjaldnar. Fer bara eftir því hvernig skapi ég er í og hvort ég hef eitthvað að segja eða ekki. Ég er að skrifa fyrir sjálfan mig ekki aðra. Kannski fæ ég einhverja skemmtilega penna til að skrifa reglulega á ritið, hver veit? Ef þið vitið um einhverja, látið mig þá vita!
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Grimmd – Sögur af einelti
- Að kunna að bera ábyrgð
- Titanic og Titan: Skáldskapur verður að raunveruleika
- Þegar Ísland breyttist í alræðisríki: Li Peng, Jiang Zemin og Falun Gong
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
Hver er þín skoðun?