Kominn heim
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Ferðalög
Viðbrögð: Ummæli (
Þá er maður mættur aftur á skerið. Ferðin til Svíþjóðar var bæði skemmtileg og lærdómsrík. Ég eyddi tíma mínum bæði í Stokkhólmi og Ronneby, sem er lítill bær í suður Svíþjóð.
Stokkhólmur er mjög falleg borg, full af gróðri og flottum byggingum. Í þessari milljónaborg er þó ekkert skemmtanalíf samanborið við smáborgina Reykjavík. Virka daga eru flestir farnir heim að sofa klukkan ellefu og um helgar situr fólk í rólegheitum á einhverjum pöbbum. Í miðboginni var ekki að finna eitt einasta diskótek og hvergi sá ég stað sem bauð upp á live músík! Ég stoppaði nokkra innfædda, ungt fólk á partíaldri, og spurði þá um hvar væri hægt að finna diskótek. Flestir ypptu þeir öxlum og sögðust ekkert vita. Eftir að hafa talað við nokkra lenti í ég einum sem sagðist vita um einn frábæran stað. Hann rölti með mér áleiðist en fann svo ekki staðinn. Hann hringdi þá í vin sinn og komst að því að þessi merki skemmtistaður hefði verið lagður niður fyrir um þrem mánuðum síðan! Halló!!! Þegar ég sagði Svíunum að á Íslandi væru margir dansstaðir sem yfirleitt væru fullir af fólki trúðu þeir mér varla… Og ég sem hélt að skemmtanalífið á Íslandi væri svo ómerkilegt.
Ronneby er eins og himnaríki ætti að líta út. Lítill bær uppfullur af fallegum görðum, hæðum, fossum, trjám og vinalegu fólki. Mér leið eins og ég væri í einhverju ævintýri þegar ég var þarna. Bjóst alveg eins við því að hitta Gandalf, Bilbo og Frodo á rölti mínu um bæinn. Kannski af því að ég er að lesa Lord of the Rings núna
. Frábær bók!…
Oh, já. Mér tókst að verða veikur á laugardaginn
og er enn hálf slappur. Hálsbólga og kvef og önnur leiðindi. En mér sýnist ég vera allur að hressast.
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Grimmd – Sögur af einelti
- Að kunna að bera ábyrgð
- Titanic og Titan: Skáldskapur verður að raunveruleika
- Þegar Ísland breyttist í alræðisríki: Li Peng, Jiang Zemin og Falun Gong
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
Hver er þín skoðun?