Svíþjóð


Klukkan 18 á morgun mun ég flúga til Svíþjóðar. Þar mun ég dvelja í viku hjá vinum mínum þeim Ellen og Jens. Ég kynntist þeim í Búdapest fyrir nokkrum mánuðum, nánar tiltekið í maí, þar sem ég tók þátt í ráðstefnu á vegum IUSY. IUSY er skammstöfun á International Union of Socialistic Youth og er einhverskonar regnhlífarsamtök yfir ungliðahreyfingar sósíaldemókrata um allan heim. Ég kynntist mikið af skemmtilegu fólki á þessari ráðstefnu og hef verið í tölvupóst og SMS sambandi við nokkra stanslaust síðan. Fyrir nokkrum dögum var ég að spjalla við Ellen um hvað mig langaði mikið til að heimsækja Svíþjóð aftur einn daginn (en ég bjó þar þegar ég var krakki). Hún sendi mér strax bréf til baka aftur og bauð mér í heimsókn. Svo hafði ég samband við Jens og hann bauðst einnig til að hýsa mig. Tveim dögum síðar var ég búinn að kaupa miða :) . Ég hlakka ekkert smá mikið til að hitta þau aftur og fá tækifæri til að heimsækja æskuslóðir…

Hver er þín skoðun?

Efnisorð: ,

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.