Boðorðin tíu
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Dagbók, Trú
Viðbrögð: Ummæli (
Hræsni, hroki, bull og vitleysa. Þessi orð einkenna flest það sem komið hefur fram í þáttunum Boðorðin tíu sem Egill Helgason hefur séð um. Þegar þetta er skrifað er ég að horfa á tíunda og síðasta þáttinn og ég verð að segja að mér ofbýður. Gunnar Þorsteinsson í Krossinum, bókstarfstrúarmaður og hommahatari, og trúbróðir (sem ég kann ekki að nefna) hans úr Þjóðkirkjunni halda því blákalt fram að siðmenning okkar sé Biblíunni að þakka.
Þvílíkt bull. Siðmenning hins vestræna heims er tilkomin þrátt fyrir kristna trú og vald kirkjunnar en ekki vegna hennar. Gullna reglan, einn fallegasti boðskapur (þó hann sé ekki fullkominn) Biblíunnar var fyrir löngu til áður en að Jesú á að hafa komið fram með hann og sagan sýnir okkur að frelsi, mannréttindi og lýðræði hefur aukist um leið og vald kirkjunnar og bókstafstrú manna hefur minnkað. Þetta er nú bara staðreynd. Fyrir nokkru skrifaði ég grein um tengsl kristni og siðmenningar. Ég hvet ykkur til að lesa hana.
Það er líka áhugavert að sú boðorð sem menn hafa rætt í þessum þáttum, eru hin kirkjulegu boðorð. Þ.e. ritskoðuð útgáfa af boðorðum (sem eru reyndar til í tveim útgáfum) Biblíunnar sem hvergi eru að finna þar. Boðorðin sem finnast í Biblíunni eru vitanlega allt öðruvísi.
—
Að öðru. Ég þarf að fara búa mig undir að fara út á flugvöll. Aaahhh, frí i viku í Svíþjóð. Sjáumst eftir viku.
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Grimmd – Sögur af einelti
- Að kunna að bera ábyrgð
- Titanic og Titan: Skáldskapur verður að raunveruleika
- Þegar Ísland breyttist í alræðisríki: Li Peng, Jiang Zemin og Falun Gong
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
Hver er þín skoðun?