Afrek ársins 2000
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Tímamót
Viðbrögð: Ummæli (
Árið sem er að líða var gott ár og það var slæmt ár, eins og reyndar flest önnur ár ef út í það er farið. Sumir sköruðu fram úr meðan aðrir gerðu sitthvað sem þeir vildu óska að þeir hefðu látið ógert. Því er við hæfi að við ljúkum árinu á því að rifja upp afrek og afglöp á stjórnmálasviðinu á árinu.
Stjórnmálamaður ársins
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
Það er ekki lítið afrek að steypa Davíð Oddssyni, vinsælasta stjórnmálamanni landsins til fjölda ára, af stalli. Það afrek vann Geir þó á árinu og virtist fara létt með. Þannig stimplaði hann sig inn sem framtíðarleiðtoga Sjálfstæðismanna og þann stjórnmálamann landsins sem nýtur mests trausts. Það var því ekki furða að Davíð varð sífellt sýnilegri eftir því sem á árið leið. Vinsældir Geirs urðu einfaldlega til þess að Davíð neyddist út úr skápnum ef hann ætlaði sér ekki að missa tökin á gangi mála.
Þingmaður ársins
Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks
Því fer fjarri að við séum alltaf sammála Pétri. Hann má hins vegar eiga það að hann sýnir oft á tíðum þann kjark sem aðra þingmenn skortir. Gott dæmi um það er gagnrýni hans á starfshætti Alþingis. Hann sagði löggjafarvaldið sem samkvæmt stjórnarskrá vera komið inn í ráðuneytin og lagasetningarhlutverk Alþingis markaðist að mestu af hálfgerðum prófarkalestri. Málið er að Pétur hafði alveg rétt fyrir sér. Þeir þingmenn sem mótmæltu yfirlýsingu Péturs af krafti gerðu sig að fíflum. Þeir sem kanna málið af opnum hug gera sér grein fyrir því hvar valdið liggur, og það liggur svo sannarlega ekki hjá Alþingi.
sjá nánar: Er þingræðið á þrotum?, Birtingarmyndir lýðræðisins – fyrsti hluti , Birtingarmyndir lýðræðisins – Flokkakerfið, Birtingarmyndir lýðræðisins – Alþingi: Hæfni þingmanna, Birtingarmyndir lýðræðisins – Þingræðið: Aðstöðuleysi þingmanna
Flokkur ársins
Samfylkingin
Allan síðasta vetur var rætt um að Samfylkingin myndi byrja að dafna á nýjan leik þegar formleg flokksstofnun væri um garð gengin. Nú er rúmt hálft ár liðið frá stofnun en ekki dafnar flokkurinn. Þó er ljóst að sigurgangan er hafin enda glæsileg fundaherferð formanns og varaformanns um landið afstaðin og niðurstaðan sigur fyrir Samfylkinguna. Stefnan var prófuð á kjósendum og virtist virka. Því stendur ekki til að breyta henni strax.
Fjölmiðlamaður ársins
Hrafn Jökulsson
Auk þess að vera fróður maður og kjaftfor heldur Hrafn úti einhverjum besta vef landsins, hinni endurbornu Pressu. Ekki maður fullkominn en má eiga það að hann er einhver allra besti blaðamaður sem við höfum eignast í seinni tíð.
Fjölmiðill ársins
Morgunblaðið
Fréttabréf Þjóðkirkjunnar fjallaði ítarlega um hina mjög svo velheppnuðu Kristnihátíð sem gekk framar björtustu vonum. Aðrir fjölmiðlar gátu hins vegar ómögulega komið auga á allan þann fjölda gesta sem Morgunblaðið kom auga á. Morgunblaðið er dyggur málsvari stofnana ríkisvaldsins og svarar endanlega spurningunni hvort ríkið eigi að halda úti dagblaði eins og sjónvarpsstöð. Þess gerist ekki þörf meðan Moggans nýtur við.
Almannatengslamenn ársins
Útgefendur 3. bindis ævisögu Steingríms Hermannssonar
Það hefur sennilega engin bók fengið jafn góða kynningu áður en hún kom út og 3. bindi ævisögu Denna dæmalausa. Flestir fjölmiðlar voru undirlagðir af áratugs gömlum æsifréttum síðustu vikuna áður en bókin kom út. Það fór því ekki á milli mála að bókin væri að koma út og að margt merkilegt væri í henni. Þó læddist að einstaka manni sá grunur að allt markvert væri þegar komið fram í fjölmiðlum og því óþarfi að lesa bókina.
Ráðherra ársins
Sólveig Pétursdóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra
Seinheppin, íhaldssöm og dæmigerður style-over-substance stjórnmálamaður. Sólveig kynnti átak í umferðaröryggi fyrr á árinu en fjöldi látinna í umferðarslysum er með því hæsta sem um getur. Hún kynnti frumvarp um þyngingu refsinga örfáum vikum eftir að dómsmálaráðuneytið kynnti skýrslu sem leiðir í ljós að slíkt er líklegra til að fjölga afbrotum en draga úr þeim. Fáir ráðherrar hafa haldið jafn marga og jafn glæsilega blaðamannafundi á ferli sínum og Sólveig hélt í ár, málið vandaðist hins vegar þegar í ljós kom að lítið eða ekkert stóð að baki kynningunum.
sjá nánar: Fjölgar dómsmálaráðherra afbrotum?, Dómsmálaráðherra á villigötum
Flopp ársins
Kristnihátíð
Hvernig sem á það er litið verður ekki framhjá því horft að Kristnihátíðin sem átti að draga tugi þúsunda á Þingvelli var flopp. Áhuginn var í lágmarki, mætingin til háðungar og umræðan í kjölfar hátíðarinnar afar neikvæð. Hátíðin átti að vera skrautsýning Þjóðkirkjunnar en markaði sennilega upphafið að endalokum ríkiskirkju á Íslandi. En við hverju er svo sem að búast þegar Júlíus Hafstein er fenginn til að skipuleggja hátíð?
sjá nánar: Eitt land, ein þjóð, ein trúarbrögð, Kristnir kúka frítt, Hver er opinber afstaða Þjóðkirkjunnar?, Nasistar á meðal vor?, Að upphefja sig á kostnað annarra, Upphafið að endalokunum?
Viðskipti ársins
Ekki-salan á Hótel Valhöll
Undir venjulegum kringumstæðum hefði fæstum dottið í hug að meina manni að kaupa hótel eða sumarhús. En þar sem Hótel Valhöll er á Þingvöllum, staðnum þar sem tvær misheppnuðustu hátíðir síðari ára áttu sér stað, og væntanlegur kaupandi útlendingur fór ekki hjá því að ýmsir stjórnmálamenn, og annað þjóðrækið fólk, fékk fyrir hjartað. Málið var auðvitað dæmigerður þjóðrembingur en lýsti skæru ljósi á þá staðreynd að Þingvallanefnd hefur engan veginn staðið sig.
sjá nánar: Hefur Þingvallanefnd brugðist?
Bók ársins
Forsætisráðherra, ævisaga Steingríms Hermannssonar 3. bindi eftir Dag. B. Eggertsson
Hún hefur verið sögð ónákvæm, endurtekning á efni sem áður hefur verið fjallað um og skáldsaga. Hvað sem því líður er bókin ómissandi fyrir hvern þann sem hefur áhuga á stjórnmálasögu. Það er ef til vill ekki allt satt og rétt sem kemur fram í bókinni en hún gefur vissar hugmyndir um hvernig stjórn landsins er og hefur verið háttað. Hvort það sé til þess fallið að róa menn eða skelfa látum við lesendum eftir.
Sendiherra ársins
Jón Baldvin Hannibalsson, sendiherra í Bandaríkjunum
Staðreyndin er einfaldlega sú að Jón Baldvin er með flottari mönnum sem hafa lagt stjórnmál og sendiherrastarfið fyrir sig. Lýsingar hans á bandaríska kosningakerfinu og ónefndum frambjóðendum voru fyndnar, hreinskilnar og til þess fallnar að fara í taugarnar á ýmsum. Jón Baldvin rúlar.
Ummæli ársins
Þuríður Backman um einkavæðingu ríkisstjórnarinnar
Einn af merkustu talsmönnum Vinstri Grænna sá sig tilneyddan til að lýsa því yfir að sá merki stjórnmálaflokkur væri á móti einkavæðingu ríkisstjórnarinnar. VG er því væntanlega vinstra megin við hægri.
Miðaldarfílingur ársins
Trúarinnræting í opinberum skólum
Það er sorglegt til þess að vita að á árinu 2000 sé trúarinnræting enn stunduð í ríkisreknum skólum. Ritstjórn Skoðunar mótmælir slíkum mannréttindabrotum og krefst þess að raunverulegu trúfrelsi verði komið á hér á landi.
sjá nánar: Við vitum betur, Aðskiljum skóla og kirkju
Móðursýkiskast ársins
Stóra MBA málið
Það ætlaði allt um koll að keyra þegar ákveðið var að rukka hálaunamenn um skólagjöld fyrir að fá að stunda svokallað MBA-nám. Pólitískir framapotarar töluðu um afnám jafnréttis til náms og afturhvarf til hinna myrku miðalda. Stjórnmálamenn sem aldrei áður höfðu fjallað um menntamál af nokkru viti reyndu allt sem þeir gátu til þess skora pólitísk mörk. En taugaveiklunin var svo mikil að flestum tókst aðeins að skora vandræðaleg sjálfsmörk.
sjá nánar: Skólagjöld og jafnrétti til náms
Koss ársins I
Kossinn sem Óli forseti gaf ástkonu sinni fyrir framan Hof ástarinnar og var sýndur á Stöð 2.
Með þessum kossi sýndi forsetinn alþjóð að hann er tilfinningaríkur og rómantískur maður. Það verður líka að teljast afrek að með þessum eina kossi tókst forsetanum að gera margan íhaldsmanninn óvinnufæran af pirringi.
Koss ársins II
Júdasarkoss Guðna Ágústsonar, landbúnaðarráðherra
Í æviminningum Guðna verður örugglega sér kafli sem ber heitið „Kýrnar þagna“ því heyrst hefur að allar hinar beljurnar í fjósinu hafi þagnað þegar Guðni kyssti Búkollu bless.
Heimsókn ársins
Li Peng gerist Íslandsvinur
Fjöldamorðinginn Li Peng kom í kurteisisheimsókn til Íslands og hafði mikil áhrif. Hann sameinaði ungliðahreyfingar stjórnmálaflokkanna og kenndi íslenskum yfirvöldum hvernig á að hneppa almenning í stofufangelsi. Frést hefur að Saddam komi á næsta ári.
sjá nánar: Lærdómsríkt ferðalag
Viðkvæmni ársins
Skoðun ekki lengur í náðinni
Annar ritstjóri Skoðunar skrifaði grein þar sem hann benti á þá skemmtilegu mótsögn að frjálshyggjumennirnir á frelsi.is eru allir skráðir í einn helsta forsjárhyggjuflokk landsins, Sjálfstæðisflokkinn. Sama dag og greinin var birt hvarf Skoðun úr tengslasafni frelsarans.
sjá nánar: Frjálshyggjumenn í kommúnistaflokki
Fíaskó ársins
Talnapúkinn stríðir Bandaríkjamönnum
Bandarísku forsetakosningarnar eru án nokkurs vafa fíaskó ársins. Hvernig er hægt að halda lýðræðislegar kosningar í landi þar sem innfæddir kunna hvorki að kjósa né telja? Hvar var Jimmy Carter svo þegar heimurinn þurfti á honum að halda?
sjá nánar: Kosningavaka kanamangarans
Mismunun ársins
Klósett handa rétttrúuðum
Við sem sitjum í ritstjórn Skoðunar erum þekktir fyrir að þjást af pólitískri rétthugsun. Þess vegna fór það mikið fyrir brjóstið á okkur þegar rukka átti ásatrúarmenn fyrir salernisaðstöðu á Þingvöllum sem kristnir fengu að nota ókeypis. En kristilegt siðgæði og pólitísk réttsýni sigraði að lokum og allir fengu að kúka frítt.
sjá nánar: Kristnir kúka frítt
Ritdeila ársins I
Íslenskir þjóðernissinnar aAMjúpa hakakrossinn
Annar ritstjóri Skoðunar ákvað að senda Félagi íslenskra þjóðernissinna bréf í þeim tilgangi að fá nánari upplýsingar um fyrir hvað félagið stendur. Þjóðernissinnar svöruðu og sögðust vera lausir við fordóma en sögðu jafnframt að hvíti kynstofninn væri mestur og bestur og svo líktu þeir ættleiðingum barna sem ekki eru af evrópskum uppruna við hundahald.
sjá nánar: Opið bréf til Félags íslenskra þjóðernissinna, Þjóðernissinnar svara , Athugasemdir við svar þjóðernissinna , Samanburður á sp. SHG og sv. þjóðernissinna
Ritdeila ársins II
Box og mannréttindi
Mikil gremja hrjáði marga þegar tillaga nokkurra alþingismanna um að lögleiða ólympíska hnefaleika hér á landi var felld. Það er því varla undarlegt að annar ritstjóri Skoðunar hafi verið sakaður um að vera argasti kommi þegar hann lýsti því yfir að hann væri á móti því að lögleiða box.
sjá nánar: Íslensku boxi gefið rothögg, Mannréttindum á Íslandi gefið rothögg, Hnefaleikar og mannréttindi
Ritdeila ársins III
Á að lögleiða fíkniefni?
Áhugaverðar umræður áttu sér stað á þessum síðum um kosti þess og galla að lögleiða fíkniefni. Sitt sýnist hverjum.
sjá nánar: Lögleiðing fíkniefna, Samtal um lögleiðingu fíkniefna, Annað samtal um fíkniefni, Um lögleiðingu vímuefna I, Um lögleiðingu vímuefna II
Frumkvöðull ársins
Guðni Ágústson, landbúnaðarráðherra
Guðni er búinn að vera duglegur ráðherra. Hann kyssti íslenskar beljur en sagðist vilja fá að mjólka þær norsku. Sumir tala um júdasarkossa aðrir tala um framhjáhald. Við tölum um frumkvöðlastarf.
Draumur Guðna um koma á fót heiðursverði landsins fegurstu hrossa til að taka á móti erlendum gestum var matreiddur á Alþingi þetta árið þjóðlegum til mikillar ánægju. Við í ritstjórn Skoðunar óttumst að þessi hugmynd sé kannski ekki nógu umhverfisvæn.
sjá nánar: Heiðursvörður Íslendinga
Hugsjónamaður ársins I
Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttarlögmaður
Hann var duglegur við að skrifa greinar í Moggann þetta árið og Mogginn var duglegur við ramma greinarnar hans inn. Jón Steinar átti eins og alltaf nokkra góða rökfræðilega spretti en missti gjörsamlega stjórn á margrómaðri réttlætiskennd sinni þegar hann komst að þeirri merku niðurstöðu að bætt aðstaða til að taka viðtöl við börn sem hafa verið þolendur kynferðisofbeldis ógnaði hlutleysi réttarins.
sjá nánar: Jón Steinar hefur rangt fyrir sér, Hverjum er ekki sama? og Hvers eiga börnin að gjalda?
Hugsjónamaður ársins II
Björgvin Guðmundsson, formaður Heimdallar
Björgvin er kosinn hugsjónamaður ársins annað árið í röð á Skoðun. Í þetta sinn fyrir að neita að skila skattaskýrslunni sinni og fyrir að hlekkja sjálfan sig við skrifstofu skattstjóra til að vernda viðkvæmar persónuupplýsingar okkar. Björgvin er óumdeildur hugsjónamaður og hann er snillingur í koma sjálfum sér á framfæri. Hverjum hefði annars dottið í hug að frjálshyggjumenn tæku upp starfsaðferðir öfga-umhverfisverndarsinna á árinu 2000.
sjá nánar: Krossferðin gegn kerfinu, Kæri Björgvin og Samtal um skattinn
Hugdetta ársins
Að gera klámhunda útlæga úr fjölskylduveislum
Árið 2000 hófst eins og árið 1999 endað, með móðursýki. Í öðrum hverjum fréttatíma var umræða um „klámvæðingu íslensks samfélags“. Smáborgarar og prestar héldu ráðstefnu um ástandið í henni Sódómu og komust að brilliant niðurstöðu: Það á að banna öllum þeim sem stunda nektardansstaði að mæta í fjölskylduveislur. Er undarlegt að aðsókn á þessa staði hafi aukist þetta árið?
sjá nánar: Kynlífsþrælkun á Íslandi?, Meira um klám og Hinn fullkomni heimur
Metnaðarlausasti fréttafluttningur ársins
Fréttastofa Bylgjunnar telur netkosningu markverða heimild
Á sama tíma og vefstjóri Skoðunar var að setja þessa grein á netið flutti fréttastofa Bylgjunnar örugglega eina ómarkverðustu „frétt“ ársins. Í ekki-frétt Bylgjunnar kom fram að samkvæmt netkosningu, sem fór fram á kreml.is, er íslenskur almenningur búinn að missa áhugann á forsætisembættinu. Það að virt fréttastofa skuli nota netkosningu sem heimild er vægast sagt sorgleg staðreynd enda eru netkosningar líklegast ómarktækustu kosningar sem til eru (meira að segja ómarktækari en bandarískar forsetakosningar). Fréttamenn Bylgjunnar hefðu alveg eins geta vitnað í ónafngreindan mann úr Breiðholtinu og vini hans máli sínu til stuðnings.
sjá nánar: Hvernig á að svindla í kosningum
Brynjólfur Þór Guðmundsson
Sigurður Hólm Gunnarsson
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Grimmd – Sögur af einelti
- Að kunna að bera ábyrgð
- Titanic og Titan: Skáldskapur verður að raunveruleika
- Þegar Ísland breyttist í alræðisríki: Li Peng, Jiang Zemin og Falun Gong
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
Hver er þín skoðun?