100 þúsund á mánuði til götusópara ævilangt
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Ríkismenning, Ríkisumsvif
Viðbrögð: Ummæli (
Hvað ólíklegt við þessa fyrirsögn? Orðið götusópari. Það er augljóst að götusóparar eru ekki eins mikilvægir í okkar samfélagi og listamenn. Eða hvað? Alþingismenn virðast í það minnsta álíta að listamenn séu svo merkir og ómissandi þegnar í okkar samfélagi að reglulega þurfi að gefa völdum einstaklingum úr þessum hópi 100.000 krónur á mánuði ævilangt bara fyrir það að vinna vinnuna sína, eða að hafa unnið vinnuna sína á árum áður.
Bruðl
Nú virðist hafa náðst víðtæk samstaða á hinu háa Alþingi um að nú skuli tíu listamönnum vera bætt við þann flokk manna sem hljóta svokölluð „heiðursverðlaun listamanna“ en í þeim hóp eru nú samkvæmt Pressunni „[a]ðeins ellefu listamenn…“. Ef þær upplýsingar sem Pressan hefur reynast á rökum reistar þá þýðir það að skattgreiðendur þurfa bráðlega að borga 25 milljónir og 200 þúsund krónur á ári undir listamenn sem hafa ekki gert neitt annað en að stunda þá vinnu sem þeir hafa sjálfir kosið að stunda. Ég veit ekki hvað öðrum finnst en þetta er það sem ég kalla gott dæmi um bruðl og sóun á peningum skattgreiðenda.
Af hverju listamenn?
Það reynir mikið á mína vitsmuni að skilja hvers vegna listamenn eiga að njóta þesskonar heiðursverðlauna en ekki aðrir hópar þjóðfélagsins. Ég reyndar skil ekki hvers vegna svona verðlaun eru veitt yfirleitt en fyrst svo er, hvers vegna í ósköpunum eru það þá aðeins listamenn sem fá slík verðlaun? Af hverju ekki götusóparar, ruslakarlar, lögreglumenn og sundlaugaverðir? Ég hef notið þeirrar gífurlegu reynslu og ánægju sem fylgir því að starfa sem ruslakarl (þið vitið, þeir sem stela ruslinu úr ruslatunnunum ykkar) og kannski er ég hrokafullur en einhvernveginn sé ég ekki að sá hópur ríkisstarfsmanna sé minna mikilvægur en listamenn. Auk þess hafa þeir sem starfa í öskunni mun meira við auka 100.000 kall á mánuði að halda en t.d. Erró sem er einn þeirra sem mun hljóta heiðursverlaun listamanna samkvæmt títtnefndri Pressu.
Hvað með kennara?
Af hverju veitir ríkið ekki bestu kennurunum árlega ókeypis æviáskrift að peningum í verðlaun fyrir vel unnin störf? Ég er ekki viss um að slík tillaga myndi leysa kennaradeiluna endalausu en hún myndi eflaust hjálpa til.
Nú halda eflaust margir að mér sé illa við listamenn. Það er auðvitað ekki rétt. Ég kann vel við flesta þá listamenn sem ég hef kynnst og er ég raunar mikill listunnandi sjálfur. Ég tel einfaldlega að þau listamannalaun sem hér hafa verið umrædd séu óþarfa peningaeyðsla á kostnað skattgreiðenda. Á kostnað launafólks sem vinnur stóran hluta sólarhringsins í þjóðfélagslega mikilvægum en oft jafnframt illa launuðum störfum til þess að geta haft ofaní fyrir sig og fjölskyldu sína.
Ég tel að stjórnvöld ættu að sjá sóma sinn í því að draga úr bruðli á kostnað skattgreiðenda en verja þess í stað peningunum í að bæta velferðarþjónustuna sem oft er fjárþurfa og til þess að lækka skatta.
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Grimmd – Sögur af einelti
- Að kunna að bera ábyrgð
- Titanic og Titan: Skáldskapur verður að raunveruleika
- Þegar Ísland breyttist í alræðisríki: Li Peng, Jiang Zemin og Falun Gong
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
Hver er þín skoðun?