Vefþjóðviljinn frelsar oss frá illu


Eftirfarandi pistill byggist ekki á skoðun undirritaðs á þeim sem standa að útgáfu Vefþjóðviljans. Hér hefur undirritaður einungis fengið lánaðan ritstíl þeirra andríkismanna til að benda á rökvillur í pistli þeirra (sjá www.andriki.is) sem birtist í dag.


Það er kunnara en frá þurfi að segja að menn telja sig oft geta ráðið fram úr vanda heimsins með ýmis konar boðum og bönnum og jafnvel ritskoðun. Til er hópur manna sem til að mynda vill banna klám og rekstur nektardansstaða vegna þess að sú starfsemi gerir að þeirra mati lítið úr konum. Þessi hópur manna lítur á fullorðið fólk sem ósjálfbjarga börn sem ríkið eitt getur bjargað með stífum reglum. Þessi málflutningur á sér nokkurn hljómgrunn hér á landi en sem betur fer leiða flestir hann hjá sér sem hvert annað rugl. Þó ekki allir.

Á Vefþjóðviljanum og öðrum málgögnum frjálshyggjumanna virðist alltaf vera nægt framboð af fólki sem telur sig geta skorað nokkur stig í umræðunni með því að efna til greinaskrifa um forsjárhyggjumenn. Hvað eftir annað taka ungir frjálshyggjumenn upp á því að ræða opinberlega og af fúlustu alvöru við forsjárhyggjumenn, andstæðinga nektardansstaða, stuðningsmenn ríkisfjölmiðla og þá sem enn vilja banna bjórinn. Eini sýnilegi tilgangurinn með þessum áróðri manna á Vefþjóðviljanum virðist vera sá að undirstrika eigið frjálslyndi, víðsýni og annað ágæti.

Auðvitað fæst engin niðurstaða úr umræðum við menn sem vilja ,,banna mönnum sem stunda nektardansstaði að mæta í fermingarveislur” eða saka eigendur slíkra staða um ,,þrælahald” og önnur ,,mannréttindabrot“. Jafnvel duglegustu frjálshyggjumennirnir hafa ekki snúið einum einasta forsjárhyggjumanni af þessari gerð. Eina hugsanlega afleiðingin af þessari auglýsingamennsku Vefþjóðviljans er að forsjárhyggjan fær ókeypis auglýsingu í fréttatímum og umræðuþáttum. Jafnvel má gera ráð fyrir að einhverjir líti á forsjárhyggju sem gáfulegt sjónarmið sem þarf að fjalla um af alvöru.

Hver er þín skoðun?

Efnisorð:

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.