Samtal um lögleiðingu fíkniefna
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Fíkniefnavandinn
Viðbrögð: Ummæli (
Skiptar skoðanir eru eðlilega um hvort skynsamlegt sé að lögleiða fíkniefni hér á landi. Ég er einn af þeim sem hef miklar efasemdir um lögleiðingu fíkniefna. Til að útskýra afstöðu mína betur hef ég útbúið ímyndað samtal á milli mín og frjálshyggjumanns sem vill að fíkniefni verði lögleidd.
Þessar rökræður eru auðvitað ósanngjarnar þar sem að ég samdi þær spurningar og fullyrðingar sem ég síðan sjálfur svara. En þetta eru þó allt þekkt rök frjálshyggjumanna.
Innflutningur og afbrot
Það er ekki hægt að stöðva innflutning fíkniefna. Fólk neytir fíkniefna hvort sem þau eru lögleg eða ekki.
Svipað gildir um ökuhraða og ofbeldi. Við komum ekki í veg fyrir að fólk keyri hratt eða berji mann og annan með lögunum einum saman. Eigum við þá að lögleiða ofbeldi og glannaakstur? Ég held ekki. Þrátt fyrir allt þá bera sumir einstaklingar virðingu fyrir lögum og fara eftir þeim jafnvel þó að þeir séu ekki sammála þeim.
Afbrotum fækkar. Fíkniefnin munu líklegast lækka töluvert í verði ef þau verða lögleidd og þar með mun auðgunarafbrotum fækka þar sem að neytendur komast sjaldnar í fjárhagsvanda vegna neyslu sinnar.
Sala fíkniefna fer úr undirheimunum og upp á yfirborðið. Ofbeldisafbrot framin af eiturlyfjasölum og handrukkurum þeirra hljóta því einnig að verða færri.
Það er nokkuð augljóst að ef við fækkum því sem er bannað samkvæmt lögum að þá fækkar afbrotum. Ef við hættum að sekta fólk fyrir hraðakstur þá fækkar þeim afbrotum líka. Það segir sig sjálft.
Það kann vel að vera að fíkniefni munu lækka í verði við lögleiðingu. En á móti kemur að lögleiðing mun aldrei ná til fólks undir lögaldri. En fíkniefnaneyslan hefst í langflestum tilfellum þegar fólk er undir lögaldri. Eftirspurn eftir fíkniefnum hjá fólki á þessum aldri mun síður en svo minnka þó að við gefum fullorðnu fólki leyfi til að selja og kaupa fíkniefni.
Því má búast við svipaðri undirheimastarfsemi með fíkniefni fyrir börn og nú er til staðar með tilheyrandi ofbeldi og okri.
Vel kann að vera að lögleiðing fíkniefna valdi auknu framboði á þeim og þar af leiðandi lækkuðu verði á fíkniefnum sem seld yrðu ólöglega til barna og unglinga. Þá er mögulegt að auðgunarglæpum muni fækka hjá þessum aldurshóp. Á móti kemur sú augljósa staðreynd að ef verð á fíkniefnum lækkar og aðgengi barna að þeim eykst þá eru meiri líkur á því að ungt fólk prufi að kaupa fíkniefnin og þar með meiri líkur á að þau ánetjist þeim. Ekki satt?
Glæpur án fórnarlamba
Fíkniefnasala er glæpur án fórnarlamba. Báðir aðilar, kaupandi og seljandi, vilja að viðskiptin fari fram. Ekkert fórnarlamb, enginn glæpur.
Ekki endilega. Það er að mínu mati mikill glæpur að selja vondaufum unglingum með lítið sjálfstraust stórhættuleg fíkniefni. Jafnvel þó þau vilji kaupa efnið. Við hjálpum ekki ungu fólki að stökkva fram af svölum þó það segist vilja fremja sjálfsmorð (og meinar það).
Ég ætla ekki að ganga svo langt að líkja fíkniefnasölu við morð en hún kemst nálægt því. Það er sorglegt að hlusta á suma frjálshyggjumenn halda því nánast fram að fíkniefnasalar séu hálfgerð fórnarlömb sem eru jú bara að bjóða þjónustu sem almenningur sækist eftir.
Betri gæði fíkniefna
Menn lenda ekki í því að kaupa ,,óhrein” eða blönduð fíkniefni, sem geta reynst hættulegri en óblönduð efni, ef fíkniefni verða lögleidd.
Þessi rök eru nokkuð góð og eiga vissulega rétt á sér. En á móti kemur að þetta á aðeins við um fíkniefnaneytendur yfir lögaldri. Börn og unglingar verða enn í jafnmikilli hættu á að kaupa blönduð fíkniefni þar sem að þeim verður ennþá bannað að kaupa e-töfluna sína úr apóteki. Lögleiðing gagnast því ungu fólki ekki neitt.
Fullorðnir neytendur fíkniefna geta gert það sem frjálshyggjumaðurinn talar svo oft um. Þeir geta tekið ábyrgð á neyslu sinni sjálfir. Þeir vita að þeir taka áhættu í hvert sinn sem þeir taka inn fíkniefni. Ekki satt?
Ég er reyndar þeirrar skoðunar að betra sé að stjórnvöld gefi forföllnum fíklum fíkniefni ef þeir sækjast eftir því. Þannig kippum við stoðunum undan verslun fíkniefnasalanna.
Er réttlætanlegt að banna fíkniefni?
Er réttlætanlegt að banna fullorðnu fólki að nota fíkniefni? Menn eiga að fá að gera það sem þeir vilja gera.
Það er auðvitað rétt að til eru fullorðnir og sjálfráða einstaklingar sem vilja neyta fíkniefna. Það er vissulega siðferðilega vafasamt að banna fullorðnu fólki að gera það sem það vill gera ef athæfi þeirra skaðar ekki beinlínis aðra.
Þetta eru gild rök en það er einnig siðferðislega vafasamt að lögleiða fíkniefni ef sú lögleiðing hefur í för með meiri líkur á því að ungt fólk ánetjist fíkniefnum. Ýmislegt bendir einmitt til þess að svo sé.
Í fyrsta lagi má gera ráð fyrir því að bannið eitt og sér fæli ungt fólk frá því prufa fíkniefni. Þrátt fyrir allt þá hættum við stundum við að gera hluti, einfaldlega vegna þess að það er bannað.
Í öðru lagi tel ég að bannið dragi úr aðgengi barna og unglinga að fíkniefnum.
Í þriðja lagi heldur bannið verðinu á fíkniefnum háu sem þýðir að færri hafa efni á því að prufa efnin.
Í fjórða lagi getur það reynst erfitt að segja ungu fólki að það megi ekki neyta efna sem það má hvort eð er neyta þegar lögaldri er náð. “Hvers vegna má Nonni sem er 20 ára gleypa e-töflu sem ríkið selur en ekki ég sem er 17 ára?”
Í fimmta lagi tel ég það siðlaust samfélag sem leyfir óhefta sölu á hvaða vöru sem er, jafnvel þó eðlileg notkun vörunnar sé stórhættuleg heilsu manna.
Opin en gagnrýnin umræða
Ég hvet til umræðu um lögleiðingu fíkniefna. En sú umræða má ekki vera eintómar upphrópanir. Við verðum að gera okkur grein fyrir því að bann við fíkniefnum leysir augljóslega ekki eitt og sér vandann. En þó að bannið sé engin heildarlausn þá þýðir það alls ekki að lögleiðing sé sjálfkrafa einhver lausn.
Því er oft haldið ranglega fram að lögleiðing muni draga úr fíkniefnavandanum. Lögleiðing dregur kannski úr kostnaði við lög- og tollgæslu en draga má úr kostnaði ríkisins á öðrum sviðum. Ef stuðningsmenn lögleiðingar vilja fá minn stuðning þá þurfa þeir að koma fram með mun betri rök en þeir hafa gert hingað til.
Hver er þín skoðun?
1 athugasemd
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Grimmd – Sögur af einelti
- Að kunna að bera ábyrgð
- Titanic og Titan: Skáldskapur verður að raunveruleika
- Þegar Ísland breyttist í alræðisríki: Li Peng, Jiang Zemin og Falun Gong
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
Hvaðan hefur þú það að aðgengi barna og unglinga aukist við lögleiðingu fíkniefna? Í Hollandi fer sala á kannabisefnum fram fyrir opnum tjöldum og tölur sýna að færri unglingar hafa prófað að reykja kannabisefni þar en í öðrum evrópulöndum. Portúgal var fyrsta vestræna landið til að lögleiða öll fíkniefni í neysluskömmtum árið 2001 (sala er ennþá refsiverð) og þar er neysla á fíkniefnum meðal ungmenna svipuð og í öðrum evrópulöndum.