Alþingi – sápuópera um forsjárhyggjuna
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Hugmyndafræði, Ríkisumsvif
Viðbrögð: Ummæli (
Það er enn verið að ræða notkun íslenskra veðurhugtaka á löggjafarþingi Íslendinga. Það mætti halda að einstaka þingmenn viti ekkert hvað þeir eigi að gera af sér í vinnunni. Hvers konar fólki dettur í hug að það sé í góðu lagi að Alþingi sé að senda frá sér þingsályktunartillögur um það hvernig hinar og þessar starfstéttir tali um vinnuna sína? Svör óskast.
Hversu kalt er stinningskaldi?
Kristján Pálsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og málverndarsinni með meiru dundar sér við það þessa dagana að kenna starfsmönnum Veðurstofu Íslands hvernig á að tala um veðrið. Kristjáni þykir það víst eitthvað óljóst hvað átt er við þegar veðurfræðingar tala um vindhraða sem eru einhverjir metrar á sekúndu og því vill hann beina vinsamlegum tilmælum, með þingsályktunartillögu, til veðurfræðinga að þeir taki aftur upp gömul og gild orð um vindhraða sem hvert mannsbarn skilur. Hér á hann við hugtök eins og og rok, hvassviðri, kalda og stinningskalda. Undirritaður veit reyndar um nokkra sem telja að kaldi og stinningskaldi séu hugtök um hitastig en ekki vindhraða. En hvað um það?
Mjög hratt og ofsahratt
Hvað með ökuhraða? Hver skilur eiginlega hvað átt er við þegar fréttamenn tala um að einhver ökumaður hafi verið handtekinn á meira en 140 kílómetra hraða á klukkustund? Kristján Pálsson ætti kannski að taka höndum saman við skoðanabræður sína á þingi (rétt tæpur helmingur þingmanna var fylgjandi ofangreindri tillögu Kristjáns) og fá samþykkta aðra þingsályktunartillögu þar sem fréttamönnum RÚV verði gert skylt að taka upp fallegra og skýrara orðalag um ökuhraða. Til dæmis skýra hugtökin hægt – frekar hægt – miðlungs hratt – hratt – mjög hratt og ofsahratt, miklu betur ökuhraða en einhverjir kílómetrar á klukkustund. Já það er svo margt sem þingmenn geta gert til að auðvelda okkur lífið. Eini vandinn er skortur á þingmönnum til að vinna öll þessi þjóðþrifaverk. Kannski ættum við að fjölga þingmönnum?
Greiðum athvæði gegn forsjárhyggju
Hvernig stendur á því að nær helmingur þingmanna styður þingsályktunartillögu sem er dæmi um svo svæsna forsjárhyggju að meira að segja Kolbrún Halldórsdóttir klámbani og þingmaður VG neitar samþykkja hana? Spyr sá sem ekki veit. Eitt hef ég þó orðið fróðari um. Ég veit hvaða þingmenn eiga síður minn stuðning skilinn í næstu kosningum.
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Grimmd – Sögur af einelti
- Að kunna að bera ábyrgð
- Titanic og Titan: Skáldskapur verður að raunveruleika
- Þegar Ísland breyttist í alræðisríki: Li Peng, Jiang Zemin og Falun Gong
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
Hver er þín skoðun?