Meira um klám – ritstjóri svarar vangaveltum lesenda
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Klámvæðing
Viðbrögð: Ummæli (
Það er ljóst að nektardansstaðir og klám almennt fara fyrir brjóstið á mörgum. Í einu bréfinu sem okkur hér á Skoðun barst vegna greinarinnar „Kynlífsþrælkun á Íslandi?“ veltir bréfritari nokkrum áhugaverðum spurningum fyrir sér.
Siðferðisvitund og klám
„Spurningin er líka þegar þetta er orðið aðgengilegt þá er þetta ekki eins spennandi og ólöglegt efni og þá þarf kannski að ganga alltaf örlítið lengra og spurningin er hvað samþykkir siðferðisvitund okkar að gegnið sé langt í þessum efnum. Verður barnaklám kannski einhvern tímann í lagi ef foreldrarnir samþykkja að börnin fari inn á þá braut??“
Hér lýsir bréfritari algengum rökum gegn nektardansstöðum og klámi: Ef við leyfum nektardans, leyfum við þá ekki barnaklám næst? Hér er hins vegar verið að tala um tvo algjörlega aðskilda hluti. Barnaklám mun alltaf vera siðlaust þó ekki væri nema vegna þess að börn hafa yfirleitt ekki þroska til að taka upplýsta afstöðu né hafa þau andlega eða líkamlega burði til að neita þátttöku. Flestir geta því verið sammála því að barnaklám, barnaþrælkun eða aðild barna að hernaði svo að eitthvað sé nefnt er siðleysi og viðbjóður svo ég tali hreint út.
Fólk verður þó að passa sig á því að tala ekki um klám og barnaklám eins og að á þessu tvennu sé aðeins stigsmunur en ekki eðlismunur. Klám þar sem fullorðnir einstaklingar eru þátttakendur á ekkert skylt við barnaklám. Nektardans kemur barnaklámi ekkert við, ekki frekar en venjulegt kynlíf kemur nauðgunum við.
Foreldrar eru forráðamenn barna, ekki eigendur. Siðblindir foreldrar munu því aldrei fá leyfi til að láta barnið sitt stunda klám frekar en að selja það í þrælkun.
Klám í fjölmiðlum
„Mér finnst alveg vanta inn í þessa umræðu hvað sýnt er í fréttatímunum frá þessum stöðum og eins auglýsingarnar í DV. Á þá miðla horfir fólk á öllum aldri og ég er satt best að segja í standandi vandræðum með að útskýra fyrir börnunum mínum (9 ára og niðrúr) hvað þetta sé.“
Fréttatímar sjónvarpsstöðvana og dagblöðin er uppfull af efni sem ekki eru við hæfi barna. Styrjaldir, mannslík, blóð, dráp, hungursneyðar og misþyrmingar eru meðal algengastu viðfangsefna í fjölmiðlum. Ung og viðkvæm börn ættu að mínu viti ekki að horfa á fréttatíma og eldri börn í raun ekki heldur nema í umsjón foreldra. Börn hafa mörg hver ekki vitsmunaþroska til þess að skilja allt það sem fer fram í fjölmiðlum. Ofbeldi í fréttatímum, dagblöðum, teiknimyndum og tölvuleikjum getur haft neikvæð áhrif á börn og því ættu foreldrar ekki að leyfa börnum sínum að horfa á það umsjónalaust.
Bréfritari heldur áfram:
,,Það styttist í að sá elsti fari að velta fyrir sér þessum málum og mér finnst engan veginn rétt að börn læri um kynlíf frá þessum sjónarhóli“
Þessu er ég sammála. Besta leiðin er því að tala opinskátt við börn um kynlíf sem eðlilega og fallega athöfn sem fullorðnir taka þátt í. Það hefur lengi verið mín skoðun að það eigi einnig að reyna kenna börnum umburðalyndi og virðingu fyrir náunganum. Ef börn læra slíka siðferði snemma eru meiri líkur á því að þau tileinki heilbrigðan og jákvæðan lífstíl síðar á lífsleiðinni.
Eru dansararnir með fulla fimm?
,,Hvað varðar erótík/klám eða hvað við köllum hlutina, þá er það spurning um hvort fólk með fulla fimm og fullt frelsi stundar þessa nektarstaði og á sama hátt hvort erótíkurnar (yfirleitt kvk) eru einnig með fulla fimm og fullt frelsi.“
Nú hefur undirritaður farið inn á nektardansstað auk þess sem hann þekkir fjöldan allan af ungu og heilbrigðu fólki, bæði konum og körlum, sem hafa gert slíkt hið sama. Auðvitað stundar mismunandi fólk þessa staði eins og aðra skemmtistaði.
Þær konur sem vinna við að dansa á þessum stöðum gera það líklegast á mismunandi forsendum. Eflaust finnst sumum konum starfið leiðinlegt og jafnvel ömurlegt en láta sig hafa það vegna þess að launin eru betri en annars staðar. Öðrum þykir starfið eflaust spennandi og skemmtilegt auk þess sem launin eru góð. Viðhorf þeirra til starfsins skiptir ekki svo miklu máli svo lengi sem þær eru í því af fúsum og frjálsum vilja.
Undirritaður hefur oftar en einu sinni lent í því að vinna í vinnu sem honum fannst ömurlega leiðinleg en lét sig þó hafa það í smá tíma þrátt fyrir lág laun. Ég hefði enst mun lengur í slíkri vinnu ef launin hefðu verið betri.
Það er óþolandi hefð fyrir því að líta alltaf á konur sem hjálparlaus fórnarlömb aðstæðna þegar kemur að nektardansi. Þegar karlmenn taka sig til og dansa naktir fyrir kvenfólk (sem vissulega er mun óalgengara) er sjaldan litið á þá sem einhver fórnarlömb.
Um daginn var ágætis þáttur á Stöð 2 sem fjallaði um nokkra karlmenn sem ferðuðust um Bretland og dönsuðu fyrir villt kvenfólk á öllum aldri. Þegar ég horfði á þennan þátt tók ég sérstaklega eftir tvennu áhugaverðu: Í fyrsta lagi var kvenfólkið mun ágengara (öskraði, snerti, faðmaði, kyssti) gagnvart dönsurunum en ég hef nokkurn tímann séð karlmenn vera þegar kvenfólk er að dansa (ef þú snertir er þér hent út). Í öðru lagi tók ég eftir ummælum hundfúls áhorfanda sem greinilega hafið verið dregin á strippið á röngum forsendum: ,,Þessi sýning lítillækkar konur“ – Þessi setning segir okkur einfaldlega að sumir eru bara fastir á því að konur séu allar brothætt fórnarlömb siðlausra karlmanna. Það skiptir víst engu hvort kona er að dansa fyrir karl eða hvort karl er að dansa fyrir konu, það er konan sem er lítillækkuð.
Ég vona að þetta svar mitt varpi betra ljósi á afstöðu mína til kláms.
Hver er þín skoðun?
1 athugasemd
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Grimmd – Sögur af einelti
- Að kunna að bera ábyrgð
- Titanic og Titan: Skáldskapur verður að raunveruleika
- Þegar Ísland breyttist í alræðisríki: Li Peng, Jiang Zemin og Falun Gong
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
Vá frábær grein! Mér fannst „Eru dansarar með fulla fimm?“ samt best, svo satt, svo satt!