Afrek ársins


Í fyrsta lagi þá eru ekki aldamót fyrr en að ári liðnu, í öðru lagi eru áramót, afmæli og þess háttar hátíðir tengdar dagatalinu fremur skrýtin fyrirbæri að okkar mati. En við ætlum samt að gera eins og allir aðrir og veita verðlaun fyrir ýmis (mismikil) afrek. Hér eru því fyrstu verðlaunahafarnir í árlegu (vonum við) uppgjöri Skoðunar.


Stjórnmálamaður ársins
Davíð Oddsson forsætisráðherra.
Sama hvað hverjum og einum kann að þykja um Davíð þá er maðurinn snillingur. Þó svo menn deili um það hversu mikill hugmyndafræðingur Davíð er hefur hann áorkað miklu og aflað sér meiri vinsælda en gengur og gerist um stjórnmálamenn.

Flokkur ársins
Vinstrihreyfingin – grænt framboð.
Gamaldags vinstriflokkur sem sameinaði íhaldsöflin úr Alþýðubandalagi og vinstrisinnaða Framsóknarmenn. Fengu átök í Kosovo í vöggugjöf og óvinsælar fyrirhugaðar virkjanaframkvæmdir skömmu síðar. Sýnir það og sannar að stór hluti þjóðarinnar vill bara vera á móti.

Sjónvarpsmaður ársins
Egill Helgason Skjá einum.
Þrátt fyrir að við fáum væntanlega skammir frá Gróskuvefnum sem fannst Egill ekki taka nógu harkalega á forsætisráðherra erum við óhræddir við að segja það að Egill er bestur. Þáttur hans er einmitt það sem vantaði á geldan sjónvarpsmarkaðinn.

Útvarpsmaður ársins
Egill Helgason Rás 2.
Egill í útvarpi er ef eitthvað er skemmtilegri en Egill í sjónvarpi. Laus við misvitra stjórnmálamenn lætur hann allt flakka og dæmir mann og annan.

Frjáls og óháður fjölmiðill ársins
DV/Visir.is
Annar ritstjórinn ídolíserar formann Sjálfstæðisflokksins og hinn er kvæntur einum frambjóðanda Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Einhverjir töldu sig sjá þess merki í umfjöllun blaðsins í aðdraganda kosninganna. Sérstaka athygli vakti baksíðumynd af forsætisráðherra þegar hann fór í heimsókn til mömmu og fékk kaffibolla hjá henni.

Almannatengslamaður ársins
Björgvin Sigurðsson framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingar.
Komst að því að stofnun félags Samfylkingarfólks á Suðurlandi væri stærsti viðburður í sögu þess kjördæmis. Sýnir okkur tregþenkjandi fólki hversu smávægilegir atburðir kristnitakan, lýðveldisstofnunin og þjóðvegahátíðin voru í raun og veru.

Þingmaður ársins
Kolbrún Halldórsdóttir Vinstrihreyfingunni – grænu framboði.
Það þekkti hana því sem næst enginn og það átti enginn von á því að heyra frá henni aftur fyrr en að fjórum árum liðnum. En svo rataði hún í ræðustól á Alþingi og malaði og malaði og malaði. Glæsilegur eftirmaður Hjörleifs Guttormssonar.

Flopp ársins
Samfylkingin.
Stóri jafnaðarflokkurinn náði ekki 30% fylgi í kosningum og mældist í einhverjum skoðannakönnunum næst minnsti flokkurinn. Í kosningabaráttunni söng Samfylkingarfólk um að vorið væri komið að kveða burt íhaldið. The End með Doors hefur hins vegar verið tilnefnt lag Samfylkingar.

Leiðinlegasta mál ársins I
Eyjabakkar.
Ef þetta ætti við um gömlu heimkynni annars ritstjórans (Eyjabakki 4, frá fæðingu til fjögurra ára aldurs) hefðum við áhuga en gæsir og grös eru afskaplega óspennandi umræðuefni. Þess vegna segjum við: Sökkvum Eyjabökkum en virkjum ekki.
sjá nánar: Sökkvum Eyjabökkum en virkjum ekki, Hver er byggðavandinn?

Leiðinlegasta mál ársins II
Stórhýsin í Laugardal.
Ómerkilegur grasblettur sem hafði engum verið til gagns um áratugaskeið varð allt í einu dýrmæt náttúruperla í hjarta borgarinnar þegar til stóð að reisa þar tvö hús.
sjá nánar: Ys og þys út af engu

Umræða ársins I
Leiðtogi Samfylkingar.
Margrét taldi sig ógjaldgenga þar sem hún væri formaður Alþýðubandalagsins og Sighvatur hafði ekki áhuga, Ingibjörg Sólrún gaf það frá sér og Jón Baldvin hló að því. Svo virtist þjóðin hafna öðrum, nema ef vera kynni jólasveininum og Mikka mús.

Kommúnisti ársins
Jólasveinninn.
Hann er rauður, stór og feitur. Ef þú ert stilltur og undirgefinn yfirvöldum færðu gjöf, ella kemur jólakötturinn og tekur þig. Segið okkur svo að sá sem fann jólasveininn upp hafi ekki litið til Sovétríkjanna að andgift.

Hugdetta ársins
Gróska og klæddar nektardansmeyjar.
Grósku er umhugað um siðferðiskennd almennings og er á móti nektardansstöðum. Þar sem Gróska er víðsýn hreyfing ætlast hún þó ekki til þess að nektardans verði bannaður heldur einfaldlega að nektardansmeyjum verði gert skylt að hylja kynfæri sín meðan þær dansa.
sjá nánar: Um nekt og aðrar freistingar holdsins, Siðvendni og forsjárhyggja.

Umræða ársins II
Frelsi.is, konur, barneignir og launamunur kynjanna
Konur eignast börn og eiga þess vegna að fá greidd lægri laun sagði á Frelsi.is opinberri heimasíðu ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Fæstir vildu kannast við viðhorfin nema ritstjóri og pistilhöfundur.
sjá nánar: Hver er stefna SUS?, Af frelsi og frjálshyggju, Frelsi og frjósemi.

Nafn ársins
Samfylkingin.
Hljómar eins og pólitískur armur Sam-bíóanna. Gefur hins vegar kost á skemmtilegum baráttusöng hreyfingarinnar: Fram fram fylking forðum okkur fylgi frá. Hve kaldhæðnislegt sem það hljómar þá eru Sam-bíóin einmitt núna að sýna heimildarmyndina End of Days og fjallar hún um endalok jafnaðarmennsku á Íslandi.

Hugsjónamenn ársins
Björgvin Guðmundsson og Ívar Páll Jónsson á Frelsi.is.
Þegar félagar þeirra mótmæltu því að konur ættu að hafa lægri laun en karlar létu þeir félagar í sér heyra. Ívar Páll sagði sig úr Heimdalli og Björgvin skammaði félaga sína fyrir að svíkja málstaðinn fyrir stundarvinsældir.
sjá nánar: Hver er stefna SUS?

Umræða ársins III
Útlendingar eru varhugavert fólk.
Ungir Sjálfstæðismenn á Akureyri komust að þeirri niðurstöðu að nýbúar ættu að gangast undir grunnskólapróf í íslensku áður en þeir fengju ríkisborgararétt. Einhvern veginn misskildist þetta.
sjá nánar: Hver er stefna SUS?, Af frelsi og frjálshyggju, Frelsi og frjósemi.

Ábyrgðartilfinning ársins
Ungir sjálfstæðismenn á Akureyri.
Það hefur aldrei þótt ástæða til að stjórnmálamenn öxluðu ábyrgð á gerðum sínum og yfirlýsingum. Það mættu því margir taka unga Sjálfstæðismenn á Akureyri sér til fyrirmyndar, þeir gerðu mistök og sögðu af sér til að skaða félag sitt ekki enn frekar.

Hreingerning ársins I
Alþýðubandalagið.
Aldrei hafa svo margir yfirgefið svo lítinn flokk á svo skömmum tíma.

Hreingerning ársins II
Ungir Framsóknarmenn á RÚV.
Ungir Framsóknarmenn tóku sig til einn eftirmiðdag og skunduðu í húsakynni Ríkisútvarpsins og sópuðu út öllum pólitískum áhrifum. Skúringakonurnar fengu frí þann daginn.
sjá nánar: Seljum RÚV, Þar sem ríkisrekstur á ekki heima.

Ummæli ársins
Björn Bjarnason um trúarbragðafræðslu.
Þegar menntamálaráðherra var spurður hvort eðlilegt sé að segja nemendum frá öllum helstu trúarbrögðum heims í stað þeirrar einhliða kristinfræðslu sem nú er svaraði hann: ,,[É]g er sannfærður um það að því meiri fræðslu sem menn fá um önnur trúarbrögð, því hrifnari verði þeir af kristinni trú.“ Í bananalýðveldum þykir ekkert athugavert við slíkan málflutning menntamálaráðherra.
sjá nána: Menntamálaráðherra, trú og kennsla.

Ritdeila ársins
Samkynhneigð á síðum Morgunblaðsins.
Heilagir guðsmenn og aðrir sjálfskipaðir siðapostular úthelltu visku sinni yfir fáfróðan almenning á síðum Morgunblaðsins. Samkynhneigð er dauðasynd og því verða allir þeir sem taka Biblíuna alvarlega að leggja sitt af mörkum til að stöðva þann viðbjóð. Guðsmennirnir gleymdu hins vegar að krefjast þess að samkynhneigðir skyldu drepnir eins og Biblían krefst. Ritstjórn Skoðunar bíður þess einnig með eftirvæntingu eftir því að guðsmenn leggi fram tillögu að lögum þar sem þeir sem vinna á hvíldardaginn verði tafarlaust drepnir. Slík lög hljóta að vera sérstaklega nauðsynleg nú yfir hátíð verslunarmanna.
sjá nánar: Fordómar eða umburðalyndi, Formaður Félags ungra jafnaðarmanna segir satt.

Móðursýkiskast ársins
Endalok kristilegs siðgæðis.
Nektardansmeyjar hrelldu landann sem aldrei fyrr. Klám, vændi og þrælahald varð að einhverju stærsta vandamáli sem guðhræddir Íslendingar stóðu frammi fyrir. Forseti Eistlands hélt ræðu hérlendis og kunni ekki að meta þau atvinnutækifæri sem buðust löndum hennar hérlendis. Ritstjórn Skoðunar bíður spennt eftir því sömu siðapostular gagnrýni að ofbeldismyndirnar The Ten Commandments og Jesús, sem eru uppfullar af hatri, fjöldamorðum, pyntingum og siðleysi, hafi verið leyfðar til sýningar fyrir alla aldurshópa á sjónvarpstöðvum landsins yfir jólin.
sjá nánar: Um nekt og aðrar freistingar holdsins, Siðvendni og forsjárhyggja.

Vefrit ársins
Skoðun
Kom eins og ferskur andblær inn í steingeldan vefritamarkaðinn sem fram af því hafði einkennst af flokkadráttum og skítkasti…hver sagði að þetta væri hlutlaus listi?

Til hamingju,
Brynjólfur Þór Guðmundsson
Sigurður Hólm Gunnarsson

Hver er þín skoðun?

Efnisorð:

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.